Hvað gera prakkarar í þessu?

nautnaseggur

Nafn:
Staðsetning: Bifröst, Borgarbyggð, Iceland

föstudagur, ágúst 15, 2008

Flytjum enn einusinni

Já ég vet ég hef ekki bloggað í meira en ár... en svona er það bara... ég er letingi hvað blogg varðar!!!!! en svona ef einhver les þetta blogg ennþá þá eru nýjar fréttir við Árni erum að flytja aftur... innan campus.... við fengum loksins almennilega íbúð.... og við flytjum um næstu helgi... ég hef ekki ennþá séð íbúðina en Árni hefur séð íbúð sem er eins og sú sem við fengum úthlutað og hann segir að hún sé flott þannig að ég verð víst að treista því... þetta er allavega í húsi með útveggjum, góðu eldhúsi og svoleiðis... ekki gámur eins og við erum í núna....
segi kannski meira um þetta síðar... það er að segja þegar við erum flutt...

laugardagur, maí 19, 2007

loksins komin í almennilegt húsnæði

Jebb við Árni erum loksins komin í almennilegt húsnæði... það er að vísu 2 40 feta gámar en það er samt miklu betra en það sem við vorum í ... við látum vita síðar hvenær innflutningspartíið verður híhí....
Og já það minnir mig á það ég er víst að verða gömul í næstu viku... og ég er ekki ennþá búin að ákveða neitt um að halda upp á það... það er nefninlega búið að vera svo helv... mikið að gera þessa vikuna þar sem við fengum bara lyklana að nýju íbúðinni núna síðasliðinn þriðjudag... er að spá í að gera eitthvað til að halda upp á atburðinn en ég held að ég geimi það þar til síðar í sumar... en auðvitað er öllum sem þekkja þennann rugludall velkomið að kíkja í heimsókn til okkar skötuhjúa þegar ykkur lystir og eigið leið hjá....
en nú verð ég víst að hætta að skirifa í bili og fara að finna mig til fyrir staffadjamm í kvöld... eina sem er til vandræða er það að þar sem við vorum að flytja þá veit ég ekki hvar neitt er..... wish me luck

laugardagur, nóvember 04, 2006

svoldið langt síðan ég bloggaði síðast

já ég veit... það er svoldið langt síðan ég bloggaði síðast, en maður nennir bara ekki alltaf að vera að hanga í tölvunni hérna uppi í sveti... það gengur allt rosalega vel hérna hjá okkur... og heilsan hjá okkur er ágæt að mestu leyti... smá kvef í gangi og svoleiðis... það er búið að vera mikið að gera hjá okkur að undanförnu bæði í skóla og vinnu, Árna gengur rosalega vel í skólanum og ég skemmti mér konunglega í vinnunni...
það er ekki ennþá farið að snjóa almennilega hérna, jú það hefur svossum snjóað hérna en snjórinn hefur stoppað stutt hingað til. þrátt fyrir ágætis kulda af og til þá er ágætis veður hérna uppfrá, sko þegar ekki er rok... sem er oft(ast).
við fórum í smá bæjarferð síðustu helgi og fjárfestum í nýjum bíl af gerðinni Subaru Forester og líkar vel... búin að rúnta út um allt á honum hérna uppfrá... rosa gaman...
þar sem mest allt djammið hérna uppfrá er á þriðjudögum og fimmtudögum þá hefur ekki verið mikið sjamm á mér hérna þar sem það er ekkert gaman að hafa umsjón með litlum börnum þegar maður er þunnur... ekki það að ég taki ekki þátt í djamminu ég er bara edrú eða fæ mér í mesta lagi 1 eða 2 Öl... en svona er þetta bara...
jæja ég verð að hætta núna þar sem við eigum von á fólki í kaffi eftir smá stund... endinlega farið nú að drífa ykkur í að kíkja á okkur hérna á sveitasetrinu okkar við Grábrók...

fimmtudagur, ágúst 24, 2006

Flutt í Hreðarvatnsskála

Nú eru kominar 2 vikur síðan við fluttum í Borgarfjörðinn... OG GUMMI ER SÁ EINI SEM HEFUR KOMIÐ Í HEIMSÓKN!!!! Jebbs við höfum bara fengið einn af vinum okkar í heimsókn enn sem komið er...
En að öðru.. Allt gengur vel og við erum búin að koma okkur ágætlerga fyrir hér í sveitinni. Ég byrjuð að vinna á leikskólanum og Árni líka... Við fáum að njóta þess hversu góður kokkur hann er og öllum líkar vel... nammi namm...
Það gerist svossum ekki mikið hér í sveitinni en við höfum samt nóg að gera... Síðustu helgi fór ég og hin sem erum og/eða munum vinna á leikskólanum norður á Akureyri að læra um hjallastefnuna þ.e. þeir sem gátu komið.. Árni kom ekki með þar sem hann hafði annað að gera.. En við sem fórum skemmtum okkur vel og lærðum mikið...
Annars er allt gott að frétta af okkur skötuhjúum og þar sem það er svo stutt í vinnuna hjá okkur þá annaðhvort göngum við eða hjólum í vinnuna... og svo erum við meira að segja búin að ganga á Grábrók... sem er svossum ekki ekki erfitt þar sem það er stigi upp á fjallið og svo vel troðnir slóðir þarna uppá.. og nátúrulega æðislegt útsýni... sem við munum pottþétt verða aðnjótandi aftur síðar... og kannski í eitthvert að þessum skiptum sem við gerum það munu vinir okkar gera það einnig...

föstudagur, ágúst 04, 2006

nú styttist í þetta allt saman...

Já, það er víst.. síðar í dag skal haldið út í eyjar þar sem við munum vera í húsi einu á götu sem ég man ekki hvað heitir.. en er víst ekki mjög langt frá dalnum... og nú er bara að bíða og vona að það rætist eitthvað úr þessu veðri... ég, Árni, Inga, Gummi, Óli og einhverjir fleiri förum með Herjólfi klukkan 19:30... við verðum komin til eyja um klukkan 22 í kvöld ef allt gengur vel... og síðan er planið að halda heim á leið með herjólfi á mánudaginn og svo verður haldið upp á Bifröst fljótlega í næstu viku... ellta sæta strákinn ;O) æ þið vitið þennan stóra ljóshærða, sem er að vísu nýbúinn að raka á sér hausinn þannig að hann er ekki með hár eins og er.... ok ég er farin að rugla smá... hí hí... það er svo gaman... en jæja ætli ég veriði ekki að halda áfram að vinna, verð víst að vera dugleg núna síðasta daginn minn hjá Sparisjóð Vélstjóra... þar til síðar...

mánudagur, júlí 31, 2006

Þjóðhátíð um næstu helgi og svo að flytja út á land

Jæja þá er víst að koma að því... einungis nokkrir dagar í þjóðhátíð www.dalurinn.is ... og svo náttúrurlega flutning líka... jebb ég vinn víst bara út þessa viku hér í bankanum og síðan verður flutt á www.Bifröst.is í næstu viku...