Hvað gera prakkarar í þessu?

nautnaseggur

Nafn:
Staðsetning: Bifröst, Borgarbyggð, Iceland

mánudagur, desember 29, 2003

Hei hefur einhver séð veðrið hérna í bænum. díses það bara snjóar og snjóar og það virðist ekkert ætla að hætta........ ég, Geiri og Margrét vorum rúmman klukkutíma á leiðinni frá selfossi í morgun, fórum úr þessu ágætis veðri og komum í þennan hrilling.... og ég fór með bara út af því að ég átti þrifin á sameigninni þessa vikuna...... ég sem ætlaði bara að skjótast aðeins í bæinn klára þetta og drífa mig svo heim aftur, en svona er lífið................

En út í annað smá svona Jóla kveðja eftir á ég nennti nefnilega ekki að skrifa jólakorg...... ég fékk bara einfaldlega ekki andann yfir mig.... ég verð greinilega að fara að hugsa út í þetta svoldið fyrr næst......... það gæti verið betra.......en jæja ég ætla að fara að skoða veðrið og sjá hvort ég fari austur aftur í dag eða bíði með það til morguns........ en allavega


God jul og godt nytt år
Jeg hoper å se alle glade og kjekke neste år........

laugardagur, desember 13, 2003

Jibbí síðasta prófið mitt þetta fer alveg að verða búið hjá mér.
Ég fer heim til mömmu og pabba á eftir, Margrét er að koma og ná í dótið mitt hún og Geirmundur ætla að taka það með austur, mikið er ég fegin ég þyrfti að fara allavega 3 ferðir út á umferðamiðstöð með þetta ef að ég þyrfti að fara með það í rútuna............. sem betur fer þarf ég þess ekki. en jæja ætli ég ætti ekki að fara yfir þetta einu sinni enn svona fyrir prófið ég held að það sé betra.

mánudagur, desember 08, 2003

lalalalala bara að prufa, varð að gera eitthvað ég er að fara í próf á eftir og ég veit ekkert í minn haus....... svona venjulegur prófskrekkur..... en það þíðir víst ekkert að reyna að fara að lsa meira núna, það rular mann bara meira....djöfull langa mig í nammi núna, en það er víst á bannlist svona í bili allavega, maður á ekki að borða svoleiðis þegar maður er að lesa undir próf.............. jæja þá er kominn tími til að fara að slaka á áður en maður fer í próf........ þið fáið kanski að vita hvernig gekk á efrir þegar ég er búin í prófinu.

föstudagur, desember 05, 2003

jæja ætli maður verði ekki að vera duglegur og halda áfram að blogga eitthvað og svo þarf maður líka að læra á þessa síðu setja inn linka og svoleiðis, og auðvitað verður maður líka að vera duglegur að læra, ég fer ekki í próf fyrr en á mánudaginn. Ég er svo dugleg ég er búin með heila 10 cm af afmælisgjöfinni hennar mömmu, ég klára þetta alveg örugglega ekki fyrir jól með þessu áframhaldi.................. en svona er lífið.

fimmtudagur, desember 04, 2003

Jæja nú er maður loksins kominn með þetta blog. Og þá er bara að halda áfram að vera nautnaseggur og prakkarast.