Nafn:
Staðsetning: Bifröst, Borgarbyggð, Iceland

föstudagur, maí 21, 2004

Jibbí Föstudagur

Jibbí það er kominn föstudagur. og bara 2 dagar í það að ég verði árinu eldri.. það er alltaf gaman að verða eldri. fynnst ykkur það ekki annars ;o) maður er svona að spá og spekulera í því hvað maður eigi að gera af sér um helgina. Nenni eiginlega ekki að djamma meira um helgina fór á djammið á miðvikudaginn... Er þetta kannski merki þess að maður sé farin að eldast, maður nennir ekki að vera á þessu eylífa djammi.

Ætli maður endi ekki bara á því að sitja heima og bralla eitthvað sniðugt, ég veit það bara að ég verð lítið í tölvunni minni þar sem það er víst einhver leiðinda vírus í henni og ég hef ekki nennt að gera neitt í því. en jæja ætli maður verið ekki að fara að halda áfram að vinna..

Góða helgi ;O)

1 Comments:

Blogger Helga said...

já auðvitað gerir maður eitthvað

4:07 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home