Helgin búin
Grillið tókst bara ágætlega þósvo að það tæki svoldið langann tíma að hita grillið, vegna hvassviðris og svoleiðis.... en það tókst á endanum. Og svo var bara drukkið og trallað fram á nótt (auðvitað). Þetta er pottþétt eitthvað sem þarf að gera oftar, nú spyr ég hver er næstur ;o)
Og minns var svo innilega ekki tilbúin til að fara að sofa, þannig að mín fór bara í tölvuna að dúlla sér og setti líka spólu, alltaf þarf ég að gera margt í einu, fór svo að sofa þegar spólan var búin, og viti menn ég var vöknuð klukkan átta, ég kann ekki að sofa..... alveg vonlaus.
og hei ef einhver veit hvernig ég get lagað síðuna mína plííís segið mér hvernig ég get lagað þetta, því ég er alger illi á svona.
jæja síminn hringir eins og vitlaus þannig að ég þarf víst að halda áfram að vinna.

