Hvað gera prakkarar í þessu?

nautnaseggur

Nafn:
Staðsetning: Bifröst, Borgarbyggð, Iceland

laugardagur, júlí 31, 2004

11 dagar

Ok nú er maður formelga farin að telja niður.... það eru bara 11 dagar þangað til ég fer til noregs... sko ég tel bara heilu dagan sem ég á eftir að vera á íslandi ég flýg nefninlega til noregs kl. 7:35 eða eitthvað svoleiðis og svo lendi ég í Osló um hálf eitt leitið.. en samt er flugið bara tveir og hálfur tími...humm ég missi tvo tíma út úr deginum...


Huuummmmmmm ég veit ekki alveg hvort ég eigi aðvera að sætta mig við það... ég meina sko þegar klukkan er td 6 hjá okkur þá er hún 8 úti... sem þýðir að ef ég þarf að mæta einhverstaðar klukkan 8 þá þarf ég að vakna kl. 5 að okkar tíma... lagast að vísu í vetur því þá verður bara klukkutími á milli en samt...

æ ok nú ætla ég að hætta að rausa... nenni því bara ekki

en eitt að lokum

Heia Norge

föstudagur, júlí 30, 2004

Gleðilega Verslunnarmanna helgi

Þá er helgin sem allir eru búnir aðvera að bíða eftri komin.. það verður svo gaman Partý partý partý.... og gaman gaman...


en jæja það var bara brjálað að gera í vinnunni maðru náði varla að klára símtalið áður en síminn hringdi aftur af hverju getu fólk ekki komið öllu á hreint áður en verslunarmanna helgin skellur á allir á síðasta snúning, ekki gaman en svona er það víst... ekki hægt að skammast út í það.... held samt að ég þurfu að fara að koma bjórnum mínum inn í ískáp svo að hann verði kaldur á morgun..
Chugger og svo verður náttúrulegaBarbeque


jæja hann er kominn inn í ískáp og allt að gera sig.. nú skrifa ég ekki meyra nema þetta..


Jeg skall til Norge etter 12 dager..... Kristiansand her kommer jeg.






Humm hvað á ég að segja í dag

Það er farið að skipa manni fyrir... manni er bara skipað að blogga ;o)  hí hí varð bara að segja þetta... auðvitað verð ég dugleg að blogga en ekki í dag það er nefinilega brjálað að gera.. er búin að fá 10 símtöl á meðan ég skrifaði þessar fáu línur þannig að nú hætti ég .

fimmtudagur, júlí 29, 2004

Á morgun er flöskudagur

Á morgun er flöskudagur.... og þar að auki er að koma verslunnarmanna helgi... gaman gaman.. og svo eru bara um 13 dagar þangað til ég fer til noregs.. yfir gef landið í eitt ár eða svo.. og kannski kemur maður ekkert heim aftur (bara að stríða, ég bara varð að segja þetta þar sem sumir eru búnir að skipa manni að koma aftru, og taka kallinn bara með ef að maður nær í einn slíkann... og það er ekki bara ein manneskja sem er búin að segja þetta)     hí hí....

 
Hummmm ætli þetta rætist????


en jæja lengra verður það ekki í dag þar sem mikið er að gera í vinnunni.

Ok hvað er að þessu veðri????

Jæja þá er verslunarmanna helgarveðrið komið.

Og hvernig lýst ykkur á það????????

mánudagur, júlí 26, 2004

Enn ein helgin búin

þá er víst kominn mánudagur á ný, gaman gaman
og það er víst farið að styttast í það að ég fari út til noregs bara rétt rúmmar 2 vikur í það.

Hún litla systir mín kom til mín um helgina og við gerðum svona ýmislegt saman hún hjálpaði mér smá að pakka og svo fórum við á búðarráp á laugarveginum... það sem hún systir mín getur verslað af fötum hún var endalaust aðfynna eitthvað sem hana langaði í ...

En ekki hún Helga hún fann bara einn bol, þetta er ekki alveg að gera sig að fara í búðir og fynna ekki neitt... oooohhh jæjæ það verður nú bara að hafa það..  svona er bara lífið..

ok nú er hausinn minn ofvirkur og ég hef ekki hugmynd hvað ég á að segja meyra.. þannig að það er bara bless í bili

fimmtudagur, júlí 22, 2004

Þá er farið að stittast í þetta

Pantaði mér miðann til Osló í dag þannig að þetta er allt að verða meyra og meyra raunverulegt, semsagt ég fer út að morgni 11 Ágúst klukkan rúmmlega 7 á miðvikudags morgni, á bara eftir að sjá hvernig ég ætla aðkomast til Kristiandand, ég hef val um flug, lest eða rútu.... og er ekki alveg að geta ákveðið mig (sko fjárhagslega og tímalega) hver er bestu kosturinn er... get valið að fara með flugi sem tekur svona um 50 mín og þarf þá að taka rútu sem tekur 40 mín, lest sem tekur um 5 tíma og svo rútu sem tekur um 5 tíma lika.  allavega ef að ég tek rútu þá er eins gott að það sé klósett í rútunni því ég á ekki eftir að getað setið svona lengi í rútu án þess að fara á klósett.  Hei ég meika það varla yfir hellisheiðina (svona eru þessi kvíðaköst)  ekki gaman..

Svo ætlar hún litla systir mín að koma til mín á morgun.. og við ætlum að hafa næs helgi saman, hún ætlar aðeins að hjálpa mér að pakka og svo ætlum við að gera eitthvað skemtinlegt.  Sund og svona allskonar, vona bara að veðrið verði gott, því hún litla mín er svoldið kvefuð.

Nú segi ég bara góða nótt (ætla samt ekki að fara að sofa strax, en bráðum)  SleepingSleeping          Dreaming 

miðvikudagur, júlí 21, 2004

Sprengingar eru leiðinlegar

Ég skal sko segja ykkur það að sprengingar eru sko hund leiðinlegar það er þannig að það er verið að sprengja fyrir bílakjallaranum á nýja húsinu sem á að byggja hinumegin við götun við vinnuna mína og okkur var sagt að það myndi heyrast í einhverri flautu áður og á eftir hverri sprengingu en ég hef bara ekki heyrt í einni einustu flautu...  Þannig að manni bregður alveg rosalega þegar þeir sprengja... ekki gaman... ég bara varð að koma þessu út úr systeminu hjá mér því þetta er bara pirrandi.

þriðjudagur, júlí 20, 2004

Farin að telja niður...

það eru um 21-23 dagar þangað til ég fer til Noregs...það fer eftir því hvenær ég fái flug.. gaman gaman. og nota bene það er ekki hægt að bóka netsmell með heimkomu árið síðar ég þarf að panta smellin og svo breyta heimkomutímanum og það kostar 5 þúsund krónur. voða sniðugt.

sunnudagur, júlí 18, 2004

Ég er að fara til noregs

Jæja þá er komið að því, ég fékk að vita á miðvikudaginn að ég kæmist í skólann úti í noregi, þannig að núna er maður á fullu að reyna að skipuleggja alltsaman. Búin að láta vita að ég þurfi að hætta í vinnunni fyrr og svoleiðis, og nú er bara að ákveða hvað maður tekur með sérog svoleiðis.
 
Fékk akkurat bílinn hans Geirmundar bróður til að getað farið og keypt mér kassa og svoleiðis og vitið þið hvað hann ákvað að hætta að virka, akkurat þegar ég er með hann, gat hann ekki geymt það þangað til seinna. Þannig að nú þarf ég að bíða með það að fá mér kassana því ekki nenni ég að dröslast með þá í strætó. 

en jæja það er þó til bóta að það er gott veður úti, og bara týbískt af mér að sitja inni í tölvunni....
en ég ætti kannski að hætta því að kíkja aðeins út svona áður en það fer að kólna aftur... 
Sunny     Burnt To A Crisp ætla samt að passa að verða ekki eins og þessi.








mánudagur, júlí 12, 2004

Til hamingju með daginn Inga og Gummi

Jæja þá er komið að því hún Inga orðin 28 ára og svo að auki eru þau skötuhjú búin að vera gift í eitt ár. Þannig að ég vil hér með óska þeim til hamingju með daginn.

föstudagur, júlí 09, 2004

Hvernig líst ykkur á nýja útlitið hjá mér

ég varð að breyta útlitinu hjá mér það virtist vera eina leiðin til að laga bloggið mitt. Það var víst orðið svoldið skrautlegt.

fimmtudagur, júlí 08, 2004

djö.... er maður latur

Þette er bara ekki hægtt, ég er ekki búin að blogga í meira en viku....

jæja þá er um að vera að skrifa allavega eitthvað smá ..... Fór á Metallica tónleikana á Sunnudaginn og það var bara geðveikt og ég væri alveg til í að fara aftur..og aftur og aftur, nema þá ætla ég að vera með vatnsflösku með mér svo að maður þurfi ekki alltaf að vara að fara fram að fá sér að drekka..

Og svo fór ég á Harry Potter í gær með Pabba og Fjólu og það var líka gaman.... og svo hef ég eiginlega ekki neitt meyra að segja í bili....

þannig að ég ætla bara að hætta þessu bulli og halda áfram að vinna.

ó og já það var rigning í Tungonum um helgina.