Nafn:
Staðsetning: Bifröst, Borgarbyggð, Iceland

sunnudagur, júlí 18, 2004

Ég er að fara til noregs

Jæja þá er komið að því, ég fékk að vita á miðvikudaginn að ég kæmist í skólann úti í noregi, þannig að núna er maður á fullu að reyna að skipuleggja alltsaman. Búin að láta vita að ég þurfi að hætta í vinnunni fyrr og svoleiðis, og nú er bara að ákveða hvað maður tekur með sérog svoleiðis.
 
Fékk akkurat bílinn hans Geirmundar bróður til að getað farið og keypt mér kassa og svoleiðis og vitið þið hvað hann ákvað að hætta að virka, akkurat þegar ég er með hann, gat hann ekki geymt það þangað til seinna. Þannig að nú þarf ég að bíða með það að fá mér kassana því ekki nenni ég að dröslast með þá í strætó. 

en jæja það er þó til bóta að það er gott veður úti, og bara týbískt af mér að sitja inni í tölvunni....
en ég ætti kannski að hætta því að kíkja aðeins út svona áður en það fer að kólna aftur... 
Sunny     Burnt To A Crisp ætla samt að passa að verða ekki eins og þessi.








1 Comments:

Blogger Heiða said...

Til hamingju dúllan mín, þú átt eftir að plumma þig vel í norge!

8:02 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home