Hvað gera prakkarar í þessu?

nautnaseggur

Nafn:
Staðsetning: Bifröst, Borgarbyggð, Iceland

mánudagur, ágúst 30, 2004

Jæja þá er maður loksins komin með netið

ætla ekki að skrifa mikið núna þar sem að ég ætal að fara og horfa á sjónvarpið.

blog síðustu daga

18-22 ágúst

Jæja nú hef ég semsagt ekki skrifað í nokkra daga, og það er eiginlega bara vegna leti.. eða svona hér um bil. Það hefur svossum líka verið svoldið mikið að gera í skólanum. Ég er loksins búin að ákveða mig hvað ég ætla að taka, ég ætla að taka
Norsk som andrespråk og kulturvitenskap 30ein 2annir (15ein á ísl)
Språk og samfunn i norden 10ein (5ein á ísl)
Setnings og tekstlære 10ein (5ein á ísl)
Og svo ætla ég kannsi að taka
Litterær motivstudium 10ein (5 ein á ísl)
en ég er ekki alveg viss því að hin 3 fögin eru sammtals 35 einingar á þessari önn en ég ætla að sjá til því að ég er í rauninni lika að gera BA ritgerðina mína þannig að í rauninni væri ég þá að taka 55ein (sem eru 27,5 ein á ísl) sem er náttúrlega bara mikið.

En jæja nóg um þaðég verð bara að sjá til

Annars er búið að vera mikið að gera og svoleiðis.. það var td kráarröllt á fimmtudaginn og að var mikið fjör.. semsagt ég veit hvað flestar krárnar eru og svoleiðis, og á þessu kráar kvöldi var svona keppni sem við tókum þátt í, semsagt við áttum að svara spurningum, dansa og gera svona ímislegt til að fá stig (nei við gerðum ekkert ósiðlegt) en hvað um það mitt lið var í fjórða sæti sem mér þykir bara mjög gott. Komst að vísu að því að bjórglasið kostar uþb það sama hér og heima, semsagt það er dýrt að fara á pubbinn.

Ég er líka búinað vera rosalega dugleg að læra ég er búin að þýða nokkrar blaðsíðu og þetta virðist bara ætla að ganga ágætlega. Fynn að vísu svoldið fyrir því að ég er ekki komin með orðabækurnar mína og netið, því að það er svona sumt sem maður þyrfti eiginlega að fletta upp. Og svo eru náttúrulega ýmsar vörur sem maður sakanr líka eins og korni stangirnar það viðist hvergi fást hérna, eða ég hef allavega ekki fundið þær en ég hef svossum ekki farið upp í Sørlandssentre sem er verslunarmiðstöðin hér en það er ætlunin að gera það í næstu viku, þarf bara að komast að því hvaða strætó fer þangað.
En jæja nú ætal ég að fara að hætta og fara að gera eitthvað sem ég veit að vísu ekki hvað er.


29 ágúst

ekki enn komin með nettenginu ég held að það sé eitthvað að kalinum mínum því að það kemur alltafeins og netkapall sé ekki tengdur.. ekki gaman held að ég þurfi að fara að kaupa mér nýjann kapal... ætla samt að spyrja tölvu dúddann fyrst þarf bara að ná honum heima ég gaf nefninlega upp rangt mac adress og þar sem hann var ekki heima þá þurftir ég að senda honum mail.. en nú þar ég að tala við hann beint..

jæja hvað um það að er kominn sunnudagur og ég er búin aðvera hér í rúmar 2 vikur, og auðvitað er ég farin að sakna ykkar allra.. það lagast nú vonadi þegar ég verð komin með netið og get spjallað við ykkur þannig hérna heima með íslenskt lyklaborð og svo þau ykkar sem eru með svona míkrafón og hedset þá et ég talað við ykkur í gegnum msn ;o) gaman gaman.. en jæja það er ekki búið að gerast mikið þessa vikun, skóli og aftur skóli og svo var jú partý á föstudaginn voðagaman.. við fórum nokkrar niður í bæ á eftir og það var voða gaman..djömmuðum til klukkan 3 og svo í næstu viku er ferð til danmerkur. Sko það er þannig að við siglum héðan um kl 7 um kvöld og komum svo til baka um 7 um morguninn. Það verður vonandi voða gaman ég og Gosia ætlum allavega að skemmta okkur vel og svo eru náttúrulega fullt af skiptinemum sem ætla að fara.. og svo kaupir maður náttúrulega tollinn í skipinum, þurfum að vísu að fara af skipin í svona klukkutíma en það er allt í lagi og svo verður silgt til baka.

Jæja meyra verður það ekki að sinni því að ég ætla að fara að komamér á fætur og fara að gera eitthvað.

miðvikudagur, ágúst 18, 2004

hér kemur það semég hef skrifað í dagbók á meðan ég hef verið netlaus

Fimmtudagurinn 12 ágúst.

Ég kom til Kristiansand í gær þann 11 ágúst efir um 14 tíma ferðalag. Og það skiptist svona: 1 ½ tíma keyrsla frá Selfossi til Keflavíkur, 2 tíma bið á flugvellinum og svo flug í 2 ½ tíma eða réttarasagt rúmmlega það, það var nefninlega svoldil seinkun á fluginu, og svo var lent á Gardemoen og þaðan þurfti ég svo að koma mér inn í Oslo með flytoget, það tók að vísu ekki langanntíma eða rétt um hálftíma( sko og inn í þeim tíma er tíminn frá því að ég fann farangurinn minn og þar til að lestin fór af stað, og þegar komið var til Osló þá var ég sko ekki lengi í minni gömlu heima borg eða rétt um hálftíma, því ég þurfti að ná rútunni klukkan 14:15 , var að vísu stoppuð af einkverjum náunga sem var að reyna að selja vítamín, en honum tókst nú ekk að selja henni Helgu neitt ég sagðist bara vera fátækur námsmaður og þá skildi hann að hann myndi ekki selja mér neitt. Loks þegar ég komst í rútuna, á réttum tíma þá tóku við 5 ½ tími í rútu ég var meyra að segja svo góð stelpa að ég hringdi nú í hann pabba minn þegar ég var komin í rútuna, henni seinkaði meyra að segja líka, það þurfti að stoppa svo oft á leiðinni, en loksins komst ég á áfangastað. Og þar tók á móti mér ung stúlka að nafni Iveta, og hún fór með mig þangað sem ég á núna heima, og hún sýndi mér líka þær búiðr sem eru næstar mér. Og þá hringdi ég aftur heim að vísu ekki fyrr en ég var búin að fara út í búða því að mig vantaði náttúrulega ýmislegt, gleymdi að vísu að kaupa klósett pappír, en það var allt í lagi því að ég tók með mér einn pakka af snýti pappír sko þessa litlu í plast pökkonum (ekki heilan kassa) en ég keypti mér pappír í morun og já pabbi ég er búin að fá mér pylsu. En það var að vísur ekki það fyrist sem ég fékk mér. Og svo í dag er ég búin að labba um allann miðbæinn og komin með blöðru á hælin út af söndulonum mínum (verð víst ekki mikð í þeim á næstunni). Jæja nú er víst komið að því að fara að sofa, og vitið þið hvað????? Ég sef á svona svefnsófa sem er með sama sniði og svefnsófinn sem ég svaf á þegar við komun heim til íslans, það var sko svefnsófinn sem að mamma og pabbi sváfu á þegar við áttum heima í Osló. Góða nótt.


Föstudagurinn 13 ágúst.

Þá er maður loksinsbin að sjá skólann og hitta heitthvað af kennurunum, og sjá alla hina skiptinemana. Stærstu hóparnir eru frá Bandaríkjunum og Ítalíu af öllum stöðum og svo eru líka Þjóðverjar, Litháar, Frakkar, Pólverjar, Hollendingar og svo framvegis eða rétt rúmmlega100 nemendur frá 25 löndum. Og í dag kynntist ég tveim Hollenskum stúlkum, Dana og Ameríkana, við fórum svo út í búð saman áðan og vitið þið hvað ég hélt að strákarinr yrðu mun fljóðari en við en nei nei, það var kaninn sem var lengst í búðinni enda kom hann út með 4 innkaupa poka, sá á eftir að komast að því að það er betra að kaupa minna í einu þegar maður býr einn, jæja vona allaveg að homum eigi eftri að gana vel með þetta allt... en nú ætla ég að hætta í bili því að ég ætla að fara að gera mig klára til að fara á festivalen og skemmta mér svoldið.... þannig að ég skrifa kannski eitthvað meyra þegar ég kem heim aftur.. jæja þá er maður kominn aftur heim eftir að hafa kíkkt á festivalen (tónleikana) þetta voru að vísu ágæis tónleikar en ekki beint tónlist við mitt hæfi... en jæja ég komst þó að því hvað fólkið sem ég kynntist í dag heitir hollensku stelpurnar heita Dinna og Maritt og ameríski strákurinn heitir Chris en ég man ekki ennþá hvað sá danski heitir... kemmst að því seinna býst ég við..en jæja nú ætla ég að horfa á Zorro og fara svo að sofa.. góða nótt..

Laugardagurinn 14 ágúst
Dagurinn byrjaði ekki vel, því að mín var svo góð í gærkvöldi að fá sér einn öl eða réttarasagt rétt túmlega hálfann og þá var mín bara búin á því... og fór að sofa og vitið þið hvað haldið ekki að mín hafi ekki bara vaknað klukkan 7 og svo aftur eftir klukkutíma eða svo og svoleiðis gekk að til klukkan að verða 10 og þá fór mín bara á fætur.. þurfti þess að vísu svo að ég myndi ná skoðunarferðinni um miðbæ Kristiansand... Og það gerði ég. Þetta var ágætis ferð við skoðuðum gamla bæinn, ströndina, vikið, fiskmarkaðinn og fleira... og að sjálfsögðu var okkur sínt hvar Vinmonopolið var eða réttarasagt annað þeirra, að sögn leiðsögumannsins var hann beðinn um að vera ekkert að sýna okkur þetta en hann gerði það samt. Í skoðunnarferðinni kynntist ég Noskri stúlku frá Bergen að nafni Stine og hún er hérna að læra eitthvað sem hafði alveg rosalega langt og flókið nafn.. Ok ég veit að þetta er allt í belg og biðu en ástæðan fyrir því er að ég er bara svo rosalega þreytt.. Þannig að þetta verður bara stutt í dag... og jú ég verð að koma þessu að líka, “ég brann í sólinni í dag”.. Góða nótt.


Sunnudagurinn 15 ágúst

Þá er fyrsti sunnudagurinn minn í noregi að þessu sinn búinn. Mikið búið að gera í dag.. fór í skoðunarferð um Odderøya sem tók um 2 tíma og eitt er víst ef að maður vill koma sér í form með því að ganga á ”fjöll” þá á maður skoað labba þarna því að göngustígarnir þarna eru að mestu leyti annað hvor upp eða niður í móti og það í brattara lagi... og þar eru fult af hernaðar mannvirkjum og svoleiðis því að eyjan var herstöð (eða réttarasagr þjálfunarbúðir fyrir norska herinn til 1990 og eitthvað... og frá stofnun bæjarins og þar til þjóðverjarnir komu í seinni heimstyrjöldinni var eyjan bæði varnar mannvirki og einangrunar stöð fyrir sjómenn sem komu úr löngum siglingum...en nú er hún útivista paradís..efrir að hafa gengið um eynna fórum við í siglingu um Kristiansand við héldum að vísu að þetta yriði kannski svona klukkutíma ferð en fengum svo að vita að ferðin tæki 2 ½ tíma og það var ekki neitt sérstaklega heitt uppi á þilfari..en það var samt gaman að sjá þetta alltsaman..en nú held ég að það sé kominn tími til að ég fari að leggja mig svo að ég geti gert allt það sem ég þarf að gera á morgun.. Góða nótt.


Mánudagurinn 16. ágúst

Þá er kominn enn einn mánudagurinn, að vísu fyrsti mánudagurinn minn í noregi en hann virðist ætla að verða ágætur, svaf að vísu aðeins of lengi í morgunn en það var alt í lagi þar sem ég þurfti ekki að mæta í neina tíma í morgun. En ég þurfit að ná í svokallað námsmannakort sem gefur manni aðgang að ýmsum stofum skólans og þegar ég kom voru um 100 manns á undan mér en svo var mér boðin miði með lægri tölu af einni sem gafst upp á að bíða... þannig að ég þurfti ekki að bíða nema í klukkutíma eða svo... sem betur fer því annars hefði ég þurft að bíða allavega 2 tíma.... svo fór ég og fékk aðgangsorð að tölvunum í skolanum og líka að þráðlausa netinu í skólanum.. mjög gott. Var að vísu ekki alveg að fatta hvernig þetta virkaði allt saman..en ég held að ég sé búin að finna það út núna þannig að ég get vonandi farið að nota það.. og svo fór ég og sótti eyðublöð til að fá aðgeng að netinu inni á vist hjá mér svo að ég geti farið að blogga almennilega og já Svava mín ég er að stand mig í stikkinu.. ég er búin að vera rosalega dugleg að skrifa þessa dagbók á meðan ég hef ekki haft aðgang að netinu, svo að það er ekki hægt að skammast út í það... ég er ekki ennþá búin að fá herbergisfélaga en það virðist eitthvað vera að gerast þar sem að þegar ég fór að heiman í morgun voru dyrnar að hinu herberginu lokaðar en þegar ég kom heim áðan voru þær opnar, þannig að það er aldrey að vita kannski fæ ég herbergisfélaga á morgun, eða seinna í vikunni. Og svo fæ ég líka vonandi nettenginguna líka fyrir helgi.. ég er að verða brjáluð að hafa ekki netið, því að mig vantar svo að komast inn á bokmålsordbok, til að getað haldið áfram að þýða. Og svo get ég ekki beðið að eftri að komast inn á msn.. bara til að tala við einhvern á íslensku, og nota bene þá er hljóðnemi og svoleiðis innbyggt inn í tölvuna mína þannig að ég get talað í gegnum msn svo að þeir sem vilja tala við mig þannig látið mig bara vita. En jæja nú ætla ég að fara að gera eitthvað að viti, eins og þýða eina eða tvær blaðsíður. Þannig að ég segi bara bless og góða nótt.


Þriðjudagurinn 17 ágúst

Fór í fyrsta tímann minn í dag.. og ég held meyra að segja að ég taki hann þarf að vísu að að skoða hann aðeins betur en held að það gangi. Þetta er áfangi sem tekur fyri drama og teater.. semsagt leikrit og leikhús.. og svo ætla ég að fara í áfanga sem eru aðalega tungumálið og málfræðin og þess háttar.. en nóg um það ég var að koma heim úr partý, okkur skiptinemunum var boðið í pitsa partý í starfsmanna kaffieríunni ( ég borðaði náttúrulega ekki pitsu en fékk mér þó gos.. þegar það var búið fóru flestir í parti í Kongsgår alle þar sem ein af stelpunum sem býr þar átti afmæli það var ún Ingrid frá Austuríki hún er semsagt 21 eða 22 í dag.. eftir partýið kíktum við á stúdentapubbin Østsia, þar sem við vorum til að verða 12 og þá var einfaldlega farið heim að sofa... góða nótt.

föstudagur, ágúst 13, 2004

Komin til noregs

bara ad làta vita ad mèr lìdur vel her i noregi......... eg er ad visu ekki komin med internetid heima og tarf tvi ad gera allt her i skolanum en eg vonast til ad fa tad fljotlega....... svo ad tetta verdut bara stutt idag og eg segi bara heia her fra norge..

mánudagur, ágúst 09, 2004

Síðasti vinnu dagurinn minn

Vííííí híííí þá er komið að því, síðasti vinnudagurinn minn. Ég fer út eftir einn og hálfan dag, klukkan hálf átta á miðvikudags morguninn fer ég í loftið. maður er náttúrulega orðin voða spenntur.... það þíðir víst ekkert annað....

föstudagur, ágúst 06, 2004

Hvað er með þessa síðu????

ég er búin að reyna að fara inn á þessa síðu svona 5 sinnum.... en jæja ég er að fara að flytja á eftir rosa gaman.. Pabbi er kominn í bæinn og ætlar að sækja mig í vinnunna á eftir og svo verður bara allt flut austur.

Jibbí.

jæja ég verð víst að fara að vinna núna þannig að ég skrifa meyra á efrir

fimmtudagur, ágúst 05, 2004

6 dagar eftir

Jæja þá eru 6 dagar þangað til ég fer út... mikið að gera og svoleiðis pakka niður og þess háttar og svo þarf náttúrulega að vera rigning þannig að maður nennir ekki neinu, allavega ekki að fara neitt út og svoleiðis... held að ég sé búin að redda öllu, er allavega ekki að muna efrir neinu sem ég er að gleyma...

komin með flugmiðann
vegabréfið og skilríki og svoleiðis

á bara eftir að koma öllu ofan í kassa og töskur og flytja dótið austur og þá er ég tilbúin.

miðvikudagur, ágúst 04, 2004

Halló balló bíp

Þá er maður kominn úr kaffi og farin að vinna... það er sem betru fer ekki eins brjálða að gera í dag eins og í gær.. maður gerði bara ekkert annanð í gær en að vinna vinna og vinna...
humm ætli ég kunni að segja eitthvað annað????? nei örugglega ekki.. ;o)

Jæja þá fer maður aftur að vinna

Rigning rigning rigning.

Vííííííí gaman gaman, það er svo gaman að koma rennandi blautur í vinnunna...

farin í kaffi...

mánudagur, ágúst 02, 2004

9 dagar

Gleðilegann frídag verslunnarmanna...

Ný vika byrjuð og veðrið ætlar enn einu sinni að sleppa því að ákveða sig um hvort það eigi að vera sól eða rignin... það var sól í morgun en nú er rignin.. gaman gaman... en það skiptir ekki máli ferska lofið er gott.. Þá fer alveg að koma að því er út eftir 9 dag eða svona hér um bil það er víst eiginlega 8 1/2 ok ég er farin að vera svoldið skery farin að telja aðiens of mikið niður ..

Hí hí ég held að ég þurfi að fara að gera eitthvað... ég er nefninlega alveg að sofna, enda vaknaði ég klukkan 6 í morgun við það að það var geitingur inn hjá mér það fannst mér ekki sniðugt, en mér tókst sem betur fer að drepa hann, öruggsata leiðin er einvaldlega hársprey... gardínurnar urðu að vísu svoldið stífar á eftir en það er allt í lagi.. það er hægt að þvo þær... ok nú ætla ég að hætta og fara að gera eitthvað annað.

sunnudagur, ágúst 01, 2004

Laugardagur/Saturday

Jæja þá er kominn laugardagur og ég ný komin heim úr parý... að vísu stuttu parý en samt flott partý.. ok það er verlunarmanna helgi en það er líka búið að vera rjálað að gera í vinunni hjá öllum í vikunni og þar að auku er ég að fara Erlendis í heilt ár eða svo eftir nokkra dag...

ok nú er kominn tími til að fara að sofa... sjáumst síðar.
he he he klokka er nesten 3 og jeg er hí hí
Custom Smiley