ok það er 5°c hiti á íslandi og stúlkan er í jú síðbuxum og hlírabol, ok buxurnar eru eðlilegar í þessu hitastigi en að vera á hlírabol í 5° á íslandi er ekki alveg að gera sig, jú það eru 13° hér hjá mér og stúlkan er eins klædd. en ég myndi samt ekki fara út svoleiðis, því veðrið hérna er að nokkru leiti eins og á ísl. hitastigið segir eitt en vindurinn gerir allt miklu kaldara.
en ok nóg um veðrið héðan er allt gott að frétta þrátt fyrir hálsbólgu og smá kvef. fór samt á djammið á laugardaginn og skemmti mér bara æðislega, þó svo að tónlistin hér er ekki alveg það sem ég fíla, allt of mikið teknó og eitthvað svoleiðis, og ég er ekki sú eina sem er ekki alveg að fíla það. held að ég reyni að plata fólkið frekar á breska/írska pubbuin nærst, þar er þó almennileg tónlist. en jæja nú ætla ég að hætta að rausa og fara að koma mér út, þarf víst að gera það, fá smá frískt loft og svoleiðis. sérstaklega eftir að vera vakin af þessari æðislegu brunabjöllu, það liggur við að hún fari í gang allavega einusinni í viku og ég bara vona að hún sé þá búin með sinn skamt í þessari viku.