komið enn eitt föstudags kvöldið
jæja nú eru góð ráð dýr, ég sit hérna ein inni hjá mér á föstudagskvöldi ekki alveg það sem ég ætlaði mér að gera en, ég bara nenni ekki að fara út, ég þarf að labba í rúmmar 20 mín til að komast til hennar Gosiu. og minns er sko ekki að nenna því akkurat núna. klukkan líka orðin 10 að kvöldi. við ætluðum að vísu að fara út að borða í kvöld á indverskan veitingastað en sú sem veit hvar hann er svaraði ekki svo að við bara hættum við og ætlum að fara seinna í staðinn.. það er að vísu búið að bjóða okkur í partí annað kvöld þannig að það er allt í lagi, og já ég er alltaf á djamminu... sjáum nú til hvað maður endistlengi í þessu djamm dóti. maður verður víst líka að læra. en jæja ég ætla að hætta þessu núna og gá hvort að það sé eitthvað líf einhverstaðar í húsinu... eða hvort allir séu annaðhvort farnir að sofa eða út á djammið, ég hef nefninlega tekið eftir því að norðmenn fara snemma á djammið, bærinn er næstum tómur um 2 leitið.
bless í bili
bless í bili

1 Comments:
læra... hmmm.. hvað er það..!!? ;) það er bara gott að þú skemmtir þér vel!!.. :D:D ......en það er nú líka talað um að það sé mjög gaman að koma til íslands að djamma!!.. ísland er líka fallegt land..! og athyglisvert... og líka mjög yndislegt, ekki of mikið af stórum löngum spýtum sem eru allar út í laufblöðum.... svo er selfoss líka á íslandi.. og ég á selfossi.. þannig að ef þú ert ekki búin að ná því.. þá er ég sem sagt að meina það er BEST að vera á íslandi!!... annars er noregur líka ágætt land.. en ekki láta þessa norsara með sitt litla djamm þol, ná tökum á þér.. :S (...2!!.. pff.. það er ekki neitt.. og við erum að tala um að þetta er skoðum mín.. og ég er bara krakkaskítur!!... ) því ef þeir reyna það.. þá er mér að mæta!!.. ;) allavega.. ég ætla að reyna að koma mér í það að ljúka máli mínu.. svo ég hætti nú að saurga veraldarvefinn með bullinu í mér!!.... við heyrumst síðar, sakna þín..... :$
yfir og út - Fjóla.. litla nördið.. 8-)
Skrifa ummæli
<< Home