Þrumuveður gaman gaman
jæja vitið þið hvað haldið ekki að ég hafi ekki vaknað við þetta rosa þrumuveður í nótt veit ekki hvort það voru nokkrar eldingar eða ekki en lætin voru allavega nógu mikil.. þannig að maður hugsaði sér nú gott til glóðanna að sofa aðeins lengur í morgun en nei nei það fékk mín sko ekki um níuleitið var bankað á dyrnar og fyrir utan stóð þessi myndalegi ungi maður og vildi fá að skoða gluggana hjá mér.. það er semsagt nýbúið að skipta um glugga í allri byggingunni og þeir þuftu að laga smá hjá mér og nokkrum öðrum, það ýskraði víst eitthvað í honum, sko glugganum ekki umga manninum, en hvað um það þá tók það um tvær mínútur að laga gluggan og svo fór hann.. og þá gat maður náttúrulega ekki farið aftur að sofa.. varð bara gjörðusvo vel að fara á fætur, þurfti samt ekki að mæta í skólann fyrr en kl 12. og svo efrir tímann ákváðum við nokkrar að fara að fá okkur að borða í kaffiteríunni, það er samt ekki mikið úrval en samt ágætt og það er frekar ódýrt. þrjár okkar semsagt ég, Gosia (frá Póllandi) og Marit (frá Hollandi) sátum þar til að verða fimm bara að tala um heima og geima og ég og Gosia fengum loks staðfest að Marit og einn af Amerísku strákonum eru par voða sætt.. hún er sko á stærð við mig og hann er næstum 2 metrar að ég held.. en jæja nóg af kjaftagangi. ætil það sé ekki best að ég fari að drífa mig að fara að gera eitthvað annað. svona eins og að læra eða eitthvða...

2 Comments:
mikið ofsalega er ég skotin í þessum veðurdömum hjá þér...svakalega flottar :)
mikið ofsalega er ég skotin í þessum veðurdömum hjá þér...svakalega flottar :)
Skrifa ummæli
<< Home