Hvað gera prakkarar í þessu?

nautnaseggur

Nafn:
Staðsetning: Bifröst, Borgarbyggð, Iceland

föstudagur, október 29, 2004

HeittKaltHeittKaltHeittKalt

held að veðurguðirnir séu ekki alveg að ná að ákveða sig hérna, ég er farin að sakna veðursins á ísl. og þá er mikið sagt, en ég held að allt sé skárra en þessi upp og niðru hiti, í fyrradag var næstum frost og kuldi semsagt 0°c en nú er aftur kominn 7°c rigning.. en þetta á að fara að lagast eða svo er sagt.

Fór í Halloween Party í gær. og djö er óþægilegt þegar reikt er inn ég er orðin svo óvön því að það sé reikt þar sem ég er að djamma, það er nefninlega bannað að reikja inni á skemtistöðunum hérna bara yndislegt. og eins og venjulega var tónlistin ekkert sérstök.. en það var bara fyndið að þegar ég kom heim var ég með mitt rosa slétta hár komin með krullur.

Og vitið þið hvað á sunnudaginn þá verður tímamunurinn bara klukkutími milli nor og ísl. gaman gaman, þá þarf ég ekki að spá svo rosalega mikið í því að klukkan sé ekki orðin nóg þegar mig langar að hringja eitthvað eða bíða til 12 ef ég ætla að hlusta eða horfa á eitthvað sem er kl 10 og einsog núna er kl hjá mér 21 og ég er að hlusta á fréttir

ok ég ætla að hætta núna því annars fer ég bara að rugla.. ;o)


fimmtudagur, október 28, 2004

Hrekkjavöku-Partý

Í kvöld er hrekkjavökupartý hjá okkur, hin eiginlega hrjekkjavaka er um helgina en þar sem svo margir skiptinemar eru að fara til Osló þá var ákveðið að hafa það í kvöld í Sápunni (sem er sko ein af heimavistonum)
þá er bara spurningin um hvað á maður að vera því ekki tímir maður að kaupa sé einhvern rándýrann búning. æ ég hlít að fynna eitthvað. úps ég verð víst að hætta núna og fara að finna til skóladót og fara að koma mér í skólann.

þannig að ég segi bara Góðann daginn, og ef þið eruð með einhverjar hugmyndir um hvað ég get verið í kvöld endilega látið mig vita.

;o)

sunnudagur, október 24, 2004

Jólamarsipanið er komið

Ok jóla undirbúningur byrjar greinilega fyrr hér en heima í síðustu viku sá ég jólaföndurblöð í búðum og svo rakst ég á svoldið sem er náttúrulega bara gott Jólamarsipan, það eru litlar (og stórar) fígúrur úr marsipani og sumar eru með súkkulaði utaná bara nammi namm, ég er nú samt að reyna að borða ekki of mikið af því, það má ekki skemma jólafílinginn.

ég er búin að vera rosalega dugleg að fylgjast með fréttum að heiman, sérstaklega um verkfallið, geta þeir bara ekki farið að semja og svo að krakkarnir fái smá mentun, þetta er bara ósamgjarnt gagnvart greyið krökkunum. Jú jú sum hafa nóg að gera í tónlist og íþróttum á meðan en hvað um hin greyin sem bara hanga og gera ekki neitt, þetta er bara mannskemmandi.

ok ég bara varð að fá að segja þetta, því þetta kemur mest niður á þeim sem það síður skyldi. og þetta gefur bara slæma mynd af landi og þjóð. punktur og basta

jæja þá er víst best að hætta þessu masi og fara að læra svoldið.. sæl að sinni

fimmtudagur, október 21, 2004

;O)

jæja nú er ég algerlega hætt að fatta...... hvað ég er hætt að fatte er ég ekki alveg viss.

æ ég varð bara að segja þetta, ég er nefninlegasvo rosaega þreytt núna, það voru nefninlega Alþjóðadagar á þriðjudag og miðvikudag og endaði með diskó í gær, sem var náttúrulega allveg ágætt, það vantaði bara almennilega tónlist, hvert land átti að koma með einhverja tónlist sem er vinsæl núna, og sum tónlistin var bara hrillilegt. Og svo þurfti mín náttúrlega að mæta í skólann klukkan 9 í morgunn og svo aftur kl. 17. var að vísu rosalega sniðug á milli og fór heim og lagði mig enda var það, það eina vitulega í stöðunni því þegar ég kom heim var ég svo gegn blaut að það var ekk eðlilegt og nota bene þá eru skórnir mínir ennþá blautir, mig vantar svona ísl. ofn sem maður má hengja hluti á.

en annars er allt gott héðan, vantar að vísu sæta stráka en svona er þetta víst stundum, ég er nefninlga ekki alveg að fíla þessa súkkulaði töffara hérna, og það má segja að næstum allri sem ég hef hitt hérna eru "súkkulaði töffarar".

heirðu ein spurning hvað er þetta með þetta kennaraverkfall á ekki að fara að semja, ég vorkenni þessum krökkum svo innilega, að þurfa að sitja heima og horfa út í loftið, ég hef lent í einu svona sem var að mig minnir ekki alveg svona langt. ég vona að þetta taki bráðum enda.

Held að ég þurfi að fara að leggja mig núna, þannig að ég segi bara

Góða nótt.

mánudagur, október 18, 2004

ok ég fer bráður að verða brjáluð á þessu

ég var búin að skrifa alveg geggt mikið og þá bara kemur villa og allt hverfur. ég er farin í fílu í bili út í þessa síðu. en ég skal skrifa meira síðar.

Ps það eru komnar mundir ú Osló ferðinni.

komin aftur til Kristiansand

þá er maður kominn aftur til Kristiansand, eða réttara sagt þá kom ég aftur á laugardagskvöldið en nennti ekki að gera annað en að setja það á netið sem ég var þegar búin að skrifa um feðina, en ætlaði svo að skrifa meira í gær en hvað haldið þið? Mín vaknaði með bullandi hita og að krókna úr kulda þrátt fyrir rúmmlega 20°c hita í herberginu. ekki alveg nógu gott en sem betur fer var ég svo orðin hitalaus í gær kvöldi. semsagt einhver sólarhringspest.. en jæja það var rosa fjör í Osló, ég hefði samt alveg verið til í að skoða svoldið meira en stelpunum fannst vera svo kalt að við ákváðum að fara bara að versla.

Svo fór ég upp í Jessheim til Sigrun og Steinar, það var rosalega gaman að sjá þau aftur og sjá alla krakkana (semsagt barnabörn þeirra) strákarnir tveir sem ég hitti síðast þegar ég var í noregi orðnir stórir og tvö búin að bætast við.

og svo ætlaði ég að vera svo dugleg að læra í gær en það var náttúrulega lítið annað gerten að sofa, eta og sofa meira.. og samt svaf ég í alla nótt.

þá hef ég ekki meira að segja í bil nema það að það eru komnarfleiri myndir ;)

sunnudagur, október 17, 2004

Osló ferð

Miðvikurdaginn 13 október fórum við til Osló með lestinni klukkan tíu mínútur yfir níu. Lestarferðin tók nokkuð langann tíma en tíminn var ágætlega fljótur að líða, og vorum við komin til Osló klukkan tíu mínútur í tvö. Þegar til osló var komið fórum við beinustu leið á farfuglaheimilið, og sem betur fer var það ekki langt frá miðbænum. Ódýt og gott. Anker Hostel. Þegar við vorum búnar að tékka okkur inn lögðum við í hann. Við byrjuðum auðvitað að fra á Karl Johann og skoðuðum þar og viti menn skemtinlega búðin var þar enn, semsagt Kondomeriet og það vel merkt. Við gengum alla leið upp að slottinu og skoðuðum okkur um þar og frá Karl Johan gat ég bent stelpunum á það hvar ég bjó, því það var eiginlega of langt til að fara. Svo fóurm við á Akerhusbrygga og skoðuðum þar svoldið, en þar höfðum við ekki svo mikinn tíma því við þurftum að fara að ná í miða á leikritið sem við fórum svo á seinna um kvöldið, Victoria eftri Hamsun, og var þetta í fyrsta skipti þar sem ég fór í leikhús og það var ekkert hlé. En áður en vð fórum á leikritið fórum við náttúrlega að borða. Og borðuðum við á Peppers Pitsa og þar fékk ég sko ostlausa pitsu í fyristu tilraun og það ekkert smá góða pitsu hún var svoldið sterk að vísu en góð. Eftir leikhúsið kíktum við svo á kaffihús sem heitri M. eitthvað og fengum okkur smá öl og þar smakkaði ég þennann rosalega góða bjór sem heitir Frydenlund. Þó svo að maður hefði alveg verið til í einn öl til ákváðum við að koma okkur til baka á farfuglaheimilið og leggja okkur, því við ætluðum jú að skoða svoldið daginn eftir líka.

Á fimmtudeginumm 14 október vöknuðum við svo um hálf níu leitið og fórum og keyptum okkur að eta. Og þar sem við þurftum að vera komin út af farfuglaheimilinu klukkan 11 ákváðum við að fara með dótið niður á lestarstöð og setja það í læstann skáp þar. Þegar það var búið tókum við sporvagn að Vigelandsparken og skoðuðum þar, við vorum samt ekkert svo rosalega lengi þar sem að það var nokkuð kallt úti. Við vorum að spá í að kíkja á Akerhus festning en ákváðum að gera það ekki því það var eiginlgega of kallt, og fórum þess í stað í verslunar leiðangur, og endaði ég með að kaupa mér þessa flottu mokka kápu á 650 nrk og loðhúfu á 125 nrk, en í rauninni átti kápan að kosta um 1300 krónur en var með 50% afslátt og ég bara stóðst ekki mátið. Og nota bene þá hef ég trú um að svona kápa á íslandi hefðikostað að minnsta kosti 20 -30 þús ísl. Þannig að ég held að þett sé nú bara nokkuð vel sloppið. Jæja nú ætla ég að hætta og fara að læra svoldið. Skrifa meira síðar.

mánudagur, október 11, 2004

Komnar nýjar myndir

Þá er ég búin að taka fleiri myndir og búin að setja þær inn endilega kíkið á þær.

laugardagur, október 09, 2004

Það er farið að vera helv.. kalt hérna

Ég var að koma heim núna rétt áðan og það er orðið drullukallt hérna, akkurat núna eru um 4°c. Bara kalt. held barasta að maður þurfi bráðum að fara að ganga í gammósíum. En jæja held ég þurfi að fara að leita að skósmið hérna, ég keypti mér nefninlega skó hérna fyrir svotlu síðan, sko svona támjóir með pinnahæl, og viti menn nú er tappinn undann skónum barasta búinn og ég kominn niður eða upp í naglann eða hvað sem þetta kallast. er ekki alveg að fatta mig og skó, og sér í lagi mig, skó og skrúfur/nagla. en jæja ég held að það sé kominn tími fyrir svefn núna. þannig að ég held að ég segi bara

Góða nótt.

fimmtudagur, október 07, 2004

loksins bùin ad hitta ìslending hèrna

jæja èg var à leid ì skòlann ì morgun, og stòd og beid eftir græna kallinum à gatnamòtum og hadid ekki ad èg hafi verid spurd à ìslensku hvort èg væri Helga. tà var tetta ìslensk stelpa sem hafdi heirt um ad tad væri ìslenskur skiptinemi hèr og hùn hafdi sèd myndina af mèr à altjòdaskrifstofunni, hùn hafdi ekki heldur hitt marga ìslendinga hèr en heirt ì nokkrum ùt ì bùd. Vid gàtum ekki talad mikid nùna tvì vid vorum bàdar à leid ì tìma og seinar tar ad auki, en hùn fèkk sìmanùmmerid hjà mèr og hùn ætlar ad hafa samband sìdar.

Jibbì èg er ekki ein. by the way tà heitir hùn Inga.

mánudagur, október 04, 2004

Kálbögglar nammi nammi

æ ég varð bara að segja þetta, það er nefninlega þannig að ég er að fara að borða kálbögla 3 daginn í röð, það er nebblega ódýrast að kaupa 500 gr forsið kjötfars og maður getur náttúruega ekki fryst það aftur, og ef ég elda kálbögla þá borða ég alltaf allt þannig að það er betra að elda það í minni skömtum en jæja nóg um það.

og út í annað. ég er loksins búin að setja inn myndasíðu hjá mér, það eru því miður ekki mjög margar myndir þar, ekki enn sem komið er ég ætlaði nefninlega að setja inn myndir úr elgsafaríinu en þær bara tókust ekki svo að ég þarf að fá myndir frá einhverjm öðrum. og það er í bígerð þannig að þið verðið bara að bíða. En ég er búin að setja inn myndir af húsinu mínu, það er sko þetta rauða á bakvið þetta hvíta.

en jæja ég ætla að fara að eta þannig að ég skrifa bara meira síðar.

laugardagur, október 02, 2004

Ég er ekki elsti skiptineminn

jæja ég var að koma heim af Október-fest. Og ég var að komast að því að ég er ekki elsti skiptineminn hér þannig að ég er UNG eins og það segir í einhverju lagi.

en jæja góða nótt ég er farin að sofa.

föstudagur, október 01, 2004

október-fest

Jæja þá er Október kominn og ég búin að vera hér í 7 vikur semsagt næstum 2 mánuði. En jæja í kvöld er Októberfest á Østsia, og nei þó svo að það sé búið að vera 2 partý þessa vikur og eitt til viðbótar í kvöld þá þarf maður ekki alltaf að fá sér í glas, jú kannski en þá fær maður sér vatn í glasið, það er ódýrara og maður er öragguari um það að vatin sé gott enn bjórinn. en jæja út í annað. ég fór í skólann í morgunn og vitið þið hvað það var einginn tími.. ekki gott, þurfti svi sefninlega að labba heim aftur.

en jæja ég ætla að fara að gera eitthvað, kíkja út og gá hvort að það sé farið að hlína eitthvað.