komin aftur til Kristiansand
þá er maður kominn aftur til Kristiansand, eða réttara sagt þá kom ég aftur á laugardagskvöldið en nennti ekki að gera annað en að setja það á netið sem ég var þegar búin að skrifa um feðina, en ætlaði svo að skrifa meira í gær en hvað haldið þið? Mín vaknaði með bullandi hita og að krókna úr kulda þrátt fyrir rúmmlega 20°c hita í herberginu. ekki alveg nógu gott en sem betur fer var ég svo orðin hitalaus í gær kvöldi. semsagt einhver sólarhringspest.. en jæja það var rosa fjör í Osló, ég hefði samt alveg verið til í að skoða svoldið meira en stelpunum fannst vera svo kalt að við ákváðum að fara bara að versla.
Svo fór ég upp í Jessheim til Sigrun og Steinar, það var rosalega gaman að sjá þau aftur og sjá alla krakkana (semsagt barnabörn þeirra) strákarnir tveir sem ég hitti síðast þegar ég var í noregi orðnir stórir og tvö búin að bætast við.
og svo ætlaði ég að vera svo dugleg að læra í gær en það var náttúrulega lítið annað gerten að sofa, eta og sofa meira.. og samt svaf ég í alla nótt.
þá hef ég ekki meira að segja í bil nema það að það eru komnarfleiri myndir ;)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home