Nafn:
Staðsetning: Bifröst, Borgarbyggð, Iceland

sunnudagur, október 17, 2004

Osló ferð

Miðvikurdaginn 13 október fórum við til Osló með lestinni klukkan tíu mínútur yfir níu. Lestarferðin tók nokkuð langann tíma en tíminn var ágætlega fljótur að líða, og vorum við komin til Osló klukkan tíu mínútur í tvö. Þegar til osló var komið fórum við beinustu leið á farfuglaheimilið, og sem betur fer var það ekki langt frá miðbænum. Ódýt og gott. Anker Hostel. Þegar við vorum búnar að tékka okkur inn lögðum við í hann. Við byrjuðum auðvitað að fra á Karl Johann og skoðuðum þar og viti menn skemtinlega búðin var þar enn, semsagt Kondomeriet og það vel merkt. Við gengum alla leið upp að slottinu og skoðuðum okkur um þar og frá Karl Johan gat ég bent stelpunum á það hvar ég bjó, því það var eiginlega of langt til að fara. Svo fóurm við á Akerhusbrygga og skoðuðum þar svoldið, en þar höfðum við ekki svo mikinn tíma því við þurftum að fara að ná í miða á leikritið sem við fórum svo á seinna um kvöldið, Victoria eftri Hamsun, og var þetta í fyrsta skipti þar sem ég fór í leikhús og það var ekkert hlé. En áður en vð fórum á leikritið fórum við náttúrlega að borða. Og borðuðum við á Peppers Pitsa og þar fékk ég sko ostlausa pitsu í fyristu tilraun og það ekkert smá góða pitsu hún var svoldið sterk að vísu en góð. Eftir leikhúsið kíktum við svo á kaffihús sem heitri M. eitthvað og fengum okkur smá öl og þar smakkaði ég þennann rosalega góða bjór sem heitir Frydenlund. Þó svo að maður hefði alveg verið til í einn öl til ákváðum við að koma okkur til baka á farfuglaheimilið og leggja okkur, því við ætluðum jú að skoða svoldið daginn eftir líka.

Á fimmtudeginumm 14 október vöknuðum við svo um hálf níu leitið og fórum og keyptum okkur að eta. Og þar sem við þurftum að vera komin út af farfuglaheimilinu klukkan 11 ákváðum við að fara með dótið niður á lestarstöð og setja það í læstann skáp þar. Þegar það var búið tókum við sporvagn að Vigelandsparken og skoðuðum þar, við vorum samt ekkert svo rosalega lengi þar sem að það var nokkuð kallt úti. Við vorum að spá í að kíkja á Akerhus festning en ákváðum að gera það ekki því það var eiginlgega of kallt, og fórum þess í stað í verslunar leiðangur, og endaði ég með að kaupa mér þessa flottu mokka kápu á 650 nrk og loðhúfu á 125 nrk, en í rauninni átti kápan að kosta um 1300 krónur en var með 50% afslátt og ég bara stóðst ekki mátið. Og nota bene þá hef ég trú um að svona kápa á íslandi hefðikostað að minnsta kosti 20 -30 þús ísl. Þannig að ég held að þett sé nú bara nokkuð vel sloppið. Jæja nú ætla ég að hætta og fara að læra svoldið. Skrifa meira síðar.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home