Bolla bolla bolla
| Gleðilegann bolludag öllsömul...ég hef svossum ekki mikð að segja í dag er ennþá í sjokki út af þessu sjónvarpsherbergja máli... ekkert sjónvarp í 4-7 mánuði.. sko ég horfi svossum ekki mikð á imbann hér en geri það samt, ég meina hvernig á ég að fylgjast með formúlunni ;( en jæja ég ræð fram úr því einhvernveginn.....
en að öðru, ég var rosaleg dugleg og bakaði bollur í gær.. prufaði að vísu fyrst á laugardaginn en þær féllu, tók þær of snemma út... en svo bakaði ég aftur í gær og úr því urðu bara ágætis bollur :o) fékk að vísu ekki rabbabara sultu en maður getur víst ekki fengið allt, fæ að vísu ekki heldur saltkjöt á morgun en tja... ætla bara að fá mér eitthvað annað kjöt.. og svo er verið að plana carneval á morgun líka.... já ég veit öskudagurinn er ekki fyrr en á miðvikudaginn en þetta fer víst svoldið eftir löndum hvenær sá dagur er en jæja nú ætla ég að fara að eta þannig að ég segi bara verði ykkur að góðu. |

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home