Hvað gera prakkarar í þessu?

nautnaseggur

Nafn:
Staðsetning: Bifröst, Borgarbyggð, Iceland

miðvikudagur, mars 30, 2005

þá er páskafríið búið

held að sumum skiptinemunum hafi fundist svoldið asnalegt að næstum allt var lokað um páksana... þau eru semsagt ekki vön því... og höfðu einhverjir planað að fara á djammið en því miður fyrir þau þá var allt lokað... jú það voru náttúrulega einhverjar sjoppur opnar en ekki neitt meira það var meira að segja lokað á fullt af stöðum á laugardaginn.. jú jú þeir hefðu svossum alveg getað haft opið á laugardaginn en bara til hvers frekar bara að gefa fólkinu frí til að slappa af.... og svo var náttúrulega ekki hægt að kvarta undan veðrinu það er semsagt farið að hlína og það er búið að vera sól síðustu daga... samt ekkert rosalega heitt en samt heitt.. jæja ég ætla að fara að koma mér út í góða veðrið í smá stund... enda komin tími til klukkan orðin eitt...

laugardagur, mars 26, 2005

úps gleymdi einu

ég hef verið að taka svolidið af myndum undanfarið og þar sem ég nenni ekki að búa alltaf til nýja möppu þá hef ég ákveðið að þær fari bara allar í Kristiansand 2005 möppuna þannig að þið þurfið bara að fylgjast með hvenær það voru settar nýjar myndir inn í hana... og ég lofa að ég skal reyna að gera það reglulega.......

sól og sumarylur um páskana

já það er greininlega að koma sumar í noregi.. helga litla er farin að hnerra svoldið mikið og það táknar bara eitt VOR.... oooo hvað ég vona að veðrið haldist svona.... maður má allavega alltaf vona.. ég er í páskafríi núna gaman gaman, ég er búin að vera ein heima megnið af vikunni. foreldrar meðleigjanda míns voru í heimsókn og þau ferðuðust svoldið um noreg, en nú er greininlegt að hún er komin heim.. semsagt ískápurinn er fullur af mat frá okkur báðum.. meira að segja svo fullur að það er ekki pláss fyrir einn einasta bjór þarna..... og skítugt leirtau í eldhúsinu... ok ég ætla nú ekki að kvarta þar sem ég er nú ekki allra manna best í uppvaskinu og svoleiðis en ég læt það þó ekki standa í 2-3 daga áðurn en ég vaska upp kanski vegna þess að ég er ekki með nógu marga diska hér, er semdagt bara með 2 venjulega og 2 djúpa.. en samt ég á nógu marga diska heima og þar vaskaði ég upp eftir næstum hverja máltíð...
en jæja nú ætla ég að hætta þessu og fara að spá í hvenær ég ætla að borða á morgun... sko auðvitað borða ég páska egg í morgunmat eða svona næstum því ég ætla nú að reyna að fá mér eina brauðsneið eða eitthvað áður en ég lofa engu páska eggið mitt nr 4 frá Nóa Siríus verður sko borðað með bestu lyst.... og svo verður elduaður svínahamborgarahriggur, er samt ekki alveg viss hvenær því það er brunch klukkan 1 í Såpa (sem er semsagt ein af heimavistunum) já ég veit kl 1 er svolið seint til að hafa brunch en þar sem einhverjir ætla í kirkju þá var það ákveðið að hafa þetta eftir kirkju í stað fyrir... held einhvernveginn að fólk muni eiga efritt með að vakna í fyrramálið... held að það sé partý einhverstaðar í kvöld... alla vega hér í næsta herbergi.... já það verður sko skrall hjá þeim í kvöld... sérstaklega þar sem hann Jörgen kærastinn hennar Carolinn ákvað í gær að kíkja í heimsókn um páskana... við vissum ekkert af því og vorum nú ekki hrifnar þegar dyrasíminn hringdi klukkan rúmlega 7 í morgun... en þar sem foreldrarnir henner Carolinn voru að fara með ferjunni í morgun svaraði hún símanum þar sem hún hélt að þau hefðu kannski gleymt einhverju en nei nei þá var það bara hann Jörgen sem var þar og hún varð náttúrulega mjög hissa og glöð..... en jæja nú ætla ég að hætta þessu rausi og fara að lesa smá í Ísfólkinu...

þriðjudagur, mars 22, 2005

Nýjar myndir

bara að láta vita að ég er búin að stetja inn nokkrar nýjar myndir.... og er svona að vinna í því í rólegheitunum að laga textann við gömlu myndirnar þar sem hann klikkaði eitthvað þegar ég flutti þær í eitt albúm.....

föstudagur, mars 18, 2005

Komin í páskarfrí

Svakalega líður tíminn fljótt... það eru bara strax komnir páskafrí... það er alltaf gaman, ég er meira að segja búin að fá páskaegg að heiman, og það er búið að standa upp í hillu og ég er ekkert búin aðsnerta það.. bara horfa má ekki opnaþað fyrr en á páskadag og ég ætla sko að standa við það... því að þá verður það ennþá betra að meiga borða það......

Það var alþjóðadagur á miðvikudaginn og ég var rosa dugleg og sat við mitt borð og kynnti HÍ í 3 tíma... og ég fékk meira að segja spurningar um skólan og svolieðis, semsagt það voru fleiri sem virtust hafa áhuga en fyrir áramót, því þá stoppuðu bar þeir sem ég þekkti við borðið hjá mér.. en jæja þetta var svona nett leiðinlgega gaman... það voru öll löndin sem voru þarna á miðvikudaginn og þegar fáir voru á ferli þá náttúrulega skemtum við bara sjálfum okkur með að kíkja á skólana og dansa og hafa það gaman... ítalarnir voru að vísu svo hugmyndaríkir við sína kynningu að þeir voru farnir að stoppa fólk á miðjum ganginum til að kynna sína skóla, þau eru líka 12 þannig að það var nóg af fólki til að kynna skólana. um kvöldið elduðum við svo mat frá okkar heimalöndum, ég eldaði kjötsúpu og svo hafði pabbi sent mér harðfisk... ég fékk ekki alveg einsmikið af kjöti og ég hefði þurft í súpu fyrir 20 manns en þetta var alveg nóg sem ég fékk, það er víst ekkert allt of sniðugt að hafa súpu þegar fólk á bara að fá smá smakk.. en það fór eitthvað af henni þannig að ég er ánægð.. og svo voru náttúrulega ekki allir hrifnir af harðfiskinum en ég held samt að það hafi flestir smakkað... hann kláraðist samt ekki allur heldur og samt tók ég ekki allt með... en það var allt í lagi.. Inga (íslensk stelpa sem ég þekki hér) fékk restina af því sem ég tók með upp í skóla, og var mjög ánægð með það. því miður tók ég engar myndir á alþjóðadeginum en ég ætla að reina að fá nokkrar hjá einhverjum hinna, gleymdi bara alveg að taka myndir.. og svo var náttúrulega farið á Östsia á eftir og dansað fram á kvöld ;o)
nú er kominn tími á smá lestur hjá mér þannig að ég ætla að hætta þessu í bili og fara að lesa fram að kvöldmat.

föstudagur, mars 11, 2005

nú eru góð ráð dýr

já góð ráð eru dýr..... nú sit ég hérna inni og glápi á sólina.. jú jú það er sól úti en samt ekkert rosalega hlítt... en samt hlítt... en jæja nú er svo komið að hún Helga litla er orðin brjáluð á sjónvarpsleysi og hárinu á sér líka.... ég hef greininlega allt of mikinn tíma til að hugsa... semsagt frá 6/7 á kvöldin til að verða 12 þá þarf maður að finna sér eitthvað að gera... og oftar en ekki þá byrjar mín að hugsa og hugsa og hugsa... sem ég hef aldrey talið vera góða hugmynd... og nota bene ef einhver kann að bú til svona rúðustrikað blað í tölvunni endinlega látið mig vita því mig er farið að klæja í fingurnar að gera eitthvað svona munstur dæmi og venjuleg rúðustrikuð blöð eru of lítil og reitirnir í teikni dótinu í tölvunni eru einfaldlega of litlar.... eins og þið heirð þá hef ég allt of mikinn tíma til að hugsa.... er að vísu að fara á 1000 lítra fest í kvöld.. semsagt markmið skemtunarinnar er að klára 1000 lítra af bjór.... ( ekki ég ein samt..) og við hverja 100 lítra lækkar verðið um einhverja ákveðna upphæð... en jæja eins og þið flest vitið þá kemur venjulega ekki neitt gott út úr því að hún Helga litla hugsi of mikið, það fer alltaf allt í rugl og vitleysu... og jú það kemur nú stundum eitthvað af viti upp úr mér en samt... þegar ég er fari nað hugsa eins og ég er núna ( fékk meira að segja þá hugmynd að láta klippa mig stutt aftur) þetta eru samt allt happy thougts...

og já svona bara fyrir forvitna hér getið þið heirt lagið sem norðmenn ætla að senda í Eurovision http://nrk.no/programmer/tv/melodi_grand_prix/4458820.html þurfið að vísu að skrolla aðeins niður og klikka á hör sangen..... ;0) kannist þið eitthvað við þetta lag???? líkist einhverju... eða er það bara ég... það verður allavega gaman að sjá hvernig þessu lagi gangi í kepninni í mai... en jæja nú ætla ég að fara að halda áfram að hugsa of mikið...og vona að það verði eitthvað að viti... bið að heilsa í bili

fimmtudagur, mars 10, 2005

vor í lofti

ekki veit ég hvað ég er að gera að hanga hérna inni, jú ég er víst að læra... fer út í góða veðrð á eftir... það er semsagt farið að hlína aftur og það er einnig farið að hlána. já snórinn er að fara í burtu loksins, ég fékk alveg nóg af snjó og kulda þegar ég var heima um jólin og verð fegin þegar hann fer, vona bara að það fari þá ekki að rigna... en það er svo yndislegt þegar það er farið að hlína, jú ég veit ég á eftir að hnerra alveg rosalega en hvað með það þá tekur maður bara lyfin sín, en jæja ég ætla að far að halda áfram að læra um stund og skella mér svo út í góða veðrið

laugardagur, mars 05, 2005

Wig Wam vann norsku grand pirx

já semsagt hljómsveitin sem fer til Úkraínu fyrir hönd norðmanna.... ég veit ekki alveg hvað ég á að segja um þessa hljómsveit, léleg eftir líking af laginu poison eða allavega líkist lagið þeirra því nokkuð mikið... man ekki alveg hvað hljómsveitin heitir.... en jú ætli þetta sé ekki bara alveg ágætt hjá þeim, ég er samt viss um að Selma verði betri.... jæja ég ætla að fara ð kíkja hvort ég finni ekki eitthvað fólk hér í byggingunni til að kíkja á... efast um að ég fari út það er svo kalt og ég nenni einfaldlega ekki að fara að mála mig bara til að krókna úr kulda á leiðinni niður í bæ. ég veit maður lagði nú annað eins ef ekki meira á sig hér á yngri árum, en þá fór maður líka í partý með rétta fólkinu og fór svo á almennilegt ball en hér er ekkert sem heitir almennilegt ball, bara diskó (semsagt DJ) kannski ég fari bara út um næstu helgi þá á víst að vera orðið svoldið hlírra.......

fimmtudagur, mars 03, 2005

vvvvvvvvvvvvvvááááááááááá

ég var semsagt að vakna fyrir svona hálftíma og ákvað aðeins að kíkja á netið svona áður en ég færi í skólann og vitið þið hvað????????????????? það er 17°c gaddur úti buuuuuuurrrrrrrrrrrrrrrrr bara kalt og ég þarf að fara í skólann á eftir, þarf að vísu ekki að labba til baka fyrr en klukkan 9 í kvöld en samt það verður örugglege ekki neitt hlírra... en jæja ég bara varð að segja ykkur frá þessu, því mér brá ekkert smá þegar ég sá hvað það er kallt úti... það verður greininlega ekki farið að djamma í þessum kulda..