Nafn:
Staðsetning: Bifröst, Borgarbyggð, Iceland

föstudagur, mars 18, 2005

Komin í páskarfrí

Svakalega líður tíminn fljótt... það eru bara strax komnir páskafrí... það er alltaf gaman, ég er meira að segja búin að fá páskaegg að heiman, og það er búið að standa upp í hillu og ég er ekkert búin aðsnerta það.. bara horfa má ekki opnaþað fyrr en á páskadag og ég ætla sko að standa við það... því að þá verður það ennþá betra að meiga borða það......

Það var alþjóðadagur á miðvikudaginn og ég var rosa dugleg og sat við mitt borð og kynnti HÍ í 3 tíma... og ég fékk meira að segja spurningar um skólan og svolieðis, semsagt það voru fleiri sem virtust hafa áhuga en fyrir áramót, því þá stoppuðu bar þeir sem ég þekkti við borðið hjá mér.. en jæja þetta var svona nett leiðinlgega gaman... það voru öll löndin sem voru þarna á miðvikudaginn og þegar fáir voru á ferli þá náttúrulega skemtum við bara sjálfum okkur með að kíkja á skólana og dansa og hafa það gaman... ítalarnir voru að vísu svo hugmyndaríkir við sína kynningu að þeir voru farnir að stoppa fólk á miðjum ganginum til að kynna sína skóla, þau eru líka 12 þannig að það var nóg af fólki til að kynna skólana. um kvöldið elduðum við svo mat frá okkar heimalöndum, ég eldaði kjötsúpu og svo hafði pabbi sent mér harðfisk... ég fékk ekki alveg einsmikið af kjöti og ég hefði þurft í súpu fyrir 20 manns en þetta var alveg nóg sem ég fékk, það er víst ekkert allt of sniðugt að hafa súpu þegar fólk á bara að fá smá smakk.. en það fór eitthvað af henni þannig að ég er ánægð.. og svo voru náttúrulega ekki allir hrifnir af harðfiskinum en ég held samt að það hafi flestir smakkað... hann kláraðist samt ekki allur heldur og samt tók ég ekki allt með... en það var allt í lagi.. Inga (íslensk stelpa sem ég þekki hér) fékk restina af því sem ég tók með upp í skóla, og var mjög ánægð með það. því miður tók ég engar myndir á alþjóðadeginum en ég ætla að reina að fá nokkrar hjá einhverjum hinna, gleymdi bara alveg að taka myndir.. og svo var náttúrulega farið á Östsia á eftir og dansað fram á kvöld ;o)
nú er kominn tími á smá lestur hjá mér þannig að ég ætla að hætta þessu í bili og fara að lesa fram að kvöldmat.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home