Nafn:
Staðsetning: Bifröst, Borgarbyggð, Iceland

laugardagur, mars 26, 2005

sól og sumarylur um páskana

já það er greininlega að koma sumar í noregi.. helga litla er farin að hnerra svoldið mikið og það táknar bara eitt VOR.... oooo hvað ég vona að veðrið haldist svona.... maður má allavega alltaf vona.. ég er í páskafríi núna gaman gaman, ég er búin að vera ein heima megnið af vikunni. foreldrar meðleigjanda míns voru í heimsókn og þau ferðuðust svoldið um noreg, en nú er greininlegt að hún er komin heim.. semsagt ískápurinn er fullur af mat frá okkur báðum.. meira að segja svo fullur að það er ekki pláss fyrir einn einasta bjór þarna..... og skítugt leirtau í eldhúsinu... ok ég ætla nú ekki að kvarta þar sem ég er nú ekki allra manna best í uppvaskinu og svoleiðis en ég læt það þó ekki standa í 2-3 daga áðurn en ég vaska upp kanski vegna þess að ég er ekki með nógu marga diska hér, er semdagt bara með 2 venjulega og 2 djúpa.. en samt ég á nógu marga diska heima og þar vaskaði ég upp eftir næstum hverja máltíð...
en jæja nú ætla ég að hætta þessu og fara að spá í hvenær ég ætla að borða á morgun... sko auðvitað borða ég páska egg í morgunmat eða svona næstum því ég ætla nú að reyna að fá mér eina brauðsneið eða eitthvað áður en ég lofa engu páska eggið mitt nr 4 frá Nóa Siríus verður sko borðað með bestu lyst.... og svo verður elduaður svínahamborgarahriggur, er samt ekki alveg viss hvenær því það er brunch klukkan 1 í Såpa (sem er semsagt ein af heimavistunum) já ég veit kl 1 er svolið seint til að hafa brunch en þar sem einhverjir ætla í kirkju þá var það ákveðið að hafa þetta eftir kirkju í stað fyrir... held einhvernveginn að fólk muni eiga efritt með að vakna í fyrramálið... held að það sé partý einhverstaðar í kvöld... alla vega hér í næsta herbergi.... já það verður sko skrall hjá þeim í kvöld... sérstaklega þar sem hann Jörgen kærastinn hennar Carolinn ákvað í gær að kíkja í heimsókn um páskana... við vissum ekkert af því og vorum nú ekki hrifnar þegar dyrasíminn hringdi klukkan rúmlega 7 í morgun... en þar sem foreldrarnir henner Carolinn voru að fara með ferjunni í morgun svaraði hún símanum þar sem hún hélt að þau hefðu kannski gleymt einhverju en nei nei þá var það bara hann Jörgen sem var þar og hún varð náttúrulega mjög hissa og glöð..... en jæja nú ætla ég að hætta þessu rausi og fara að lesa smá í Ísfólkinu...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home