Hvað gera prakkarar í þessu?

nautnaseggur

Nafn:
Staðsetning: Bifröst, Borgarbyggð, Iceland

miðvikudagur, apríl 27, 2005

allt að gerast

ok það virðist allt vera farið á fullt ég bruna áfram á þessum biðlista á stúdentagörðunum heima og svo barasata strax komin með nýjann nágranna.... hún heitir Kristine og er norsk veit ekki meira... hún rétt kíkti inn áðan og þurfti svo að fara aftur.. en hún býst við að flitja inn á morgun þannig að nú verður mín víst að fara að taka smá til.. var búin að breiða vel úr mér í ískapnum ;O) smotterí í hverri hillu... fanst alveg óþarfi að skilja einhverja hilluna útundan...

hægt mjakast skjaldbakan mjakast þó

það er nú ýmislegt búið að ganag á hjá henni Helgu litlu undanfarið... orðin ein í íbúðinni og það er bara þæginlegt.. maður þarf ekki að spá í það hvort eða hvenær sturtan var síðust notuð og draslið í eldhúsinu er bara mitt.. ætlaði að vísu að vera rosalega dugleg og baka á mánudaginn en nei nei þá kom viðgerðamaðurinn og athuga með það sem þrifkonan hafði gert athugassemd við og ég náttúrulega benti honum á að handfangið á eldavélinni hafði losnað um helgina svo að hann tók hurðina af ofninum og fór að gera við hana, límdi og eitthvað svoleiðis og það þurfti náttúrulega að þorna þannig að ofnhurðin lá á gólfinu í eldhúsinu... og það var rétt verið að koma núna til að setja hana saman og setrja hana aftur á ... get semsagt farið að baka á efitr.. er að spá í að baka smákökur og snúða... mín ætlar nefninlega að fara að ferðast smá í byrjun maí.. er að spá í skreppa til Bergen og kannski eitthvað meira.. ætla að sjá til ég ætla auðvitað að skreppa aðiens upp í sveit og kíkja á fólkið þar og svo er verið að spá í að kíkja til Stavanger og eitthvað svoleiðis.. nenni samt ekki að vera að ferðast mikið ein.. langar frekar að koma hingað einhverntímann seinna með góðum hóp af fólki og keyra bara um noreg í mánuð eða svo.. með enga nákvæma ferða áætlun bara lista yfir staði sem fólki langar að sjá og svo bara hafa gaman af.. og helst gera það í endan júní til byrjun ágúst.. nenni nú ekki að vera hér þegar frjóið er sem mest... en nú held ég að það sé kominn tími til að fá sér smá snæðing og koma sér svo bara út með einhverja námsbókina og setjast viður við strönd og læra smá.. því ekki nenni ég að læra hérna inni í þessu góða veðri. og já ég mjakaðis loks aðeins áfram á biðlistanum á stúdentagörðunum heima... allavega á öðrum þeirra er nú númer 18 og 13 ;o)

sunnudagur, apríl 24, 2005

aftur kominn Sunnudagur

svakalega er þessi vika búin að vera fljót að líða.. er búin að vera á fullu að gera verkefni og svoleiðis.. og svo komu mamma og pabbi á fimmtudaginn, fór að sækja þau niður á lestarstöð eftir skóla á fimmtudaginn og þau fóru með lestinni í morgun.. það var æðislegt að fá þau í heimsókn.. ég sýnid þeim bæinn og skólann minn og svo fórum við í göngutúr um Odderöya í gær.. ég er að vísu svoldið eftir mig eftir þá ferð.. allt of mikið af trjám þarna... en þetta var góður göngutúr. að vísu gengum við allt sem við fórum, skoðuðum fiskibryggjuna og svoleiðis líka keyptum samt engann fisk.. hann er svoldið dýr hérna.. en jæja ég ætla að fara að kvíla mig svolið meira.. stein sofnaði klukkan 11 í gær og vaknaði um 8 leitið en ég er ennþá þreitt.. enda er líka sunnudagur og á má maður vera í leti ;o)

sunnudagur, apríl 17, 2005

allt á aftur fótunum

ok ég vaknaði í morgun ekkert svo rosalega hress. en fór svo í grill á Odderöya sem gekk að vísu rosalega vel.. en rétt áður en ég fór í grill reyndi meðleigjandinn minn að elda sér eitthvað og viti menn eldavélin virkar ekki.. hún vikraði í morgun því ég sauð mér egg og það gekk allt vel... en jæja svo kem ég heim úr grilli og langar rosalega mikið í sturtu og hvað haldið þið ekkert heitt vatn þannig að ég varð að hafa samband við húsvörðinn og þar sem hún Helga litla er svo dugleg að kaupa sér inneign í símann (er semsagt búin að gleyma að gera það í 2 vikur) en jæja svo að ég varð bara að senda mail og vona það besta.. en svo er það að hún Caroline kemst að þessu og hún bíður með að gera eitthvað í þessu þar til ég kem heim svo að ég varð að gera þetta vegna þess að ég tala norsku... semsagt hún var ekkert að hafa fyrir því að reyna... en ég vona allavega að þetta verði lagað á morgun því það lítur bara út fyrir að þetta hafi slegið út en þar sem ég veit ekki hvar rafmagnstaflan er þá get ég ekkert gert.. heima eru rafmagnstöflurnar inni í íbúðinni þannig að ef það slær út þá er ekkert mál að slá því bara inn aftur.. en jæja nú ætla ég að fara að gera eitthvað af viti...

miðvikudagur, apríl 13, 2005

loksins búin með ritgerðina

ég er varla búin að vera viðræðuhæf síðustu vikuna vegna ritgerðarvinnu... og mikið er ég fegin að vera búin.. búin að skrifa 21 blaðsíðu um norska og íslenska málfræði... og ekki seinna vænna að vera búin. á að skila henni á föstudaginn.. en hef engann tíma á morgun til að kíka á þetta er í skólanum frá 10 um morguninn og verð víst að fram eftir kvöldi.. á bæði að vera í skólanum og á einhverju rótarí kvöldi annað kvöld... ætla að reyna að ná að gera bæði... og svo er skóli alla helgina gaman gaman.... og svo á náttúrulega að djamma smá... Carolin meðleigjandinn minn er að fara heim í næstu viku svo að það verður víst eitt loka djamm áður en hún fer... og svo líklegasr fóboltaleikur og grill líka um helgina... ekki alveg viss í hvaða röð... en það verður örugglega gaman hvernig sem það verður.... en jæja nú ætla ég að fara að prenta út ritgerðina mína og ganga frá henni í möppu svo að það sé búið.....

mánudagur, apríl 11, 2005

komst að einu sniðugu um daginn

Það kemur fyrir að ég þarf að leita að einhverju á netinu og stundum geri ég það bara svona til gamans, eins og um daginn þá ákvað ég að leita að íslensku stafrófsvísunni og svo ákvað ég að vera sniðug og leitaði líka að norskri stafrófsvísu, en eins og flestrir vita þá eigum við þessa rosalega flottu stafrófsvísu eftir Þórarinn Eldjárn sem er svona

Íslensk stafrófsvísa
A, á, b, d, ð, e, é,
f, g, h, i, í, j, k.
L, m, n, o, ó og p
eiga þar að standa hjá.

R, s, t, u, ú, v næst,
x, y, ý, svo þ, æ, ö.
Íslenskt stafróf er hér læst
í erindi þessi skrítin tvö.

(Þórarinn Eldjárn)

og jú jú nossararnir eiga líka vísu sem ég virðist ekki fynna akkruat núna en ef ég man rétt þá kemur a og svo eitthvað otð sem byrja á a og svo framvegis... ekki akkurat stiðsta vísa í heimi.. held að okka vísa sé bara miklu betri..... ég lofa ég ætla að reyna að fynna þessa vísu.. en ég bara nenni því ekki núna, er semsagt ekki í stuði...

fimmtudagur, apríl 07, 2005

víííííííííí komin ofar á biðlisanum

hí hí ég var semsagt að kíkja á biðlistan hjá stúdentagörðum og viti menn ég er númmer 20 í biðröðinni fyrir íbúð nr 5-2 og nr. 13 á listanum fyrir íbúð 5-7... og nú er bara að bíða og sjá... eina sem ég vona er að ég fái íbúð þar sem svalrinar snúa ekki í norður... vil fá smá sól á svalirnar mínar.. ég bara varð að segja ykkur þetta... ;o)

sunnudagur, apríl 03, 2005

Hjóp ekki apríl...... en gerðir þú það????

fyrsti apríl var frekar rólegur hjá henni Helgu litlu... fór að vísu niður í bæ í góða veðrinu og spókaði mig svoldið um.. það þýðir nú ekki að haga inni allan daginn að læra... maður verður nú að komast svoldið út líka..... ég fór semsagt út með það markmið að finna mér einhverja sæta góða peysu.. svona fyrir sumarið.. og hvað haldið þið... hún Helga litla sem aldrey finnur neitt á sig fann fullt í þetta sinn.. kom heim með nokkrar flíkur, en eiddi samt ekki miklum pening... það er það góða við H&M ódýr flott föt.. mikið vildi ég að það væri almennileg H&M búð heima.. en jæja það þíðir ekki að kvarta undan því.... en jæja ég hef svo lítið að segja í dag að ég held að ég segi bara ekkert meyra í bili....