Hvað gera prakkarar í þessu?

nautnaseggur

Nafn:
Staðsetning: Bifröst, Borgarbyggð, Iceland

þriðjudagur, maí 31, 2005

próf nr. 1

jæja þá er loksins komið að því, ég er að fara í fyrsta prófið á að vera mætt eftir klukkutíma og mín rétt að vakna.. hélt að það yrði auðveldara að vakna þar sem ég vaknaði af sjálfri mér klukkan 5 í gærmorgun en nei nei .. ekki gekk það í morgun lúrði til rúmmlega hálf átta en nú verð ég víst að fara að borða og fara að gera mig tilbúna... óskið mér góðs gengis... ég verð örugglega búin í prófinu þegar sumir verða að vakna ;o) en það er allt í lagi, og svo fer ég líka í próf kl 9 á fimmtudags morguninn þannig að þið verðið að hugsa vel til mín þá líka...

laugardagur, maí 28, 2005

Vááááá

Ég vaknaði klukkan rúmmlega 7 í morgun við þetta svakalega skrítna veður.. þrumur og eldingar og haggél.. ekkert smá skrítið.. en svona er víst veðrið hérna í norwegi.. en nú er víst kominn tími á hádegismat og smá labbitúr og svo haldið áfram að læra.. en ég varð bara að segja frá þessu veður dóti...

fimmtudagur, maí 26, 2005

ha ha hí hí

ok ég hef greininlega ekkert að segja.. ég kem heim efitr rúmmlega 2 vikur.. og byrja í prófum í næstu viku.. og ég er semsagt orðin smá stressuð.. fer í 2 próf í næstu viku og svo 1 í vikunni þar á eftir og svo kem ég heim.. en ég virðist vera ein af þeim síðustu sem fer heim.. flesir þeirra sem fara á efitr mér ætla að ferðast eitthvað áður en þeir fara heim en það ætla ég ekki að gera.. hefði kannski gert það ef að ég hefði verið búin í prófum fyrr.. en jæja ætli ég verði ekki að fara að halda áfram að lesa..

þriðjudagur, maí 24, 2005

jæja þá er maður orðin árinu eldri

Já það er víst ég er víst orðin 28 ára... deginum í gær var þó ekki varið í skemtanir.. þar sem ég er að fara í stór próf í næstu viku þá var deginum varið að mestu leiti í lestur á námsefni.. en jú auðvitað varð smá dúllustund um kvöldið fengið sér gott að borða og horft á svona 1 bíómynd eða svo.. og nei mamma ég fékk mér enga Rjóma tertu.. en jæja ætli ég verði ekki að fara að halda áfram að lesa, ætla að vísu að taka mér pásu á eftir og baka mér snúða.. maður verður víst að hafa eitthvað að narta í þegar maður er að lesa ;o)

P.s. takk öll sömul fyrir afmæliskveðjurnar í gær.. Stór knús og fullt af kossum... og svo sjáumst við eftir 18 daga eða svo..

fimmtudagur, maí 19, 2005

komnar myndir

þá er ég loks búin að setja inn myndir frá 17 maí.. en ég tók þær ekki allar.. fékk nokkrar lánaðar ;o)

miðvikudagur, maí 18, 2005

17. maí

þjóðhátíðardagur norðmanna 17. maí var í gær og mikið fjör í bænum.. ég ætlaði að taka fullt af myndum en það varð ekkert svo mikið úr því.. en dagurinn byrjaði með því að lúðrasveitin gekk um bæinn klukkan 7 um morguninn til að vekja fólk... hí hí voða gaman, það var svoldið öðruvísi að vakna við þetta.. en svo byrjaði barna skrúðgangan um klukkan hálf tíu.. og þar sem hún gengur framhjá húsinu hjá mér var náttúrulega farið út að horfa á.. og svo var lagt af stað niður í bæ til að kíkja á hátíðarhöldin.. en þar sem við hér á vistinni fengum enga dagskrá þá var svoldið erfitt að vita hvað var að gerast.. en við náðum að redda einni dagskrá þannig að þegar manni vantaði að vita hvað væri í gangi og hvar þá var hringt í þann sem var með hana og spurt... en hann náttúrulega talar ekki norsku þannig að það gekk stundum efrið lega.. en svona er það.. það var æðislegt veður fram eftir degi.. en svo rétt upp úr hádegir kom þetta rosalega haggél og rigning.. og þá hélt maður sér náttúrulega bara inni en jú jú auðvitað fór maður svo út og horfið á folketoget.. sem sagt hér er ekki bara ein skrúðganga.. og eftir folketoget var farið heim og fengið sér í svanginn.. og svo um kvöldið var enn ein skrúðganga... en hún var svoldið öðruvísi.. það voru meira að segja verðir í kringum lúðrasveitina.. þessi skrúðganga er sér dæmi fyrir Kristiansand.. þá semsagt haldast allir eða allavega nokkrir hóðar í hendur og hlaupa um og hálfpartinn dansa.. og endar þessi skrúðganga niður við virkið og þar var þessi rosa flotta flugeldasíning.. og sem betur fer var ágætis veður um kvöldið en samt svoldið kallt.. en nú er allt farið að ganga sinn vana gang.. með látum á efrihæðinni og allt.. og vonandi góðu veðri.. svo ég geti tillt mér út að lesa í smá stund í dag.. verð samt að passa mig.. ég nefninlega settist út um daginn og las í svona klst.. og sat óvart allan tímann með bakið í sólina svo að ég brann pínku pons.. en jæja ég verð víst að hætta núna svo að það verður meira síðar.. ég set kannski inn nokrar myndir af 17. maí síðar ég ætla að ath hvort að það séu einhverjar nothæfar hjá mér..

laugardagur, maí 14, 2005

það er yndislegt að sofa út

ok það er semsagt búið að vera að vinna í húsinu í síðustu viku og þeir byrja alltaf á slaginu 8 með hamar og bor og eru að því svona til 9 eða 10 og hætta svo eða allavega minka það mikið.. semsagt ég hef þurft að vakna fyrir 8 á hverjum einast degi til að sleppa við að vakna við þetta en í dag er náttúrulega laugardagur og þá vinna norðmenn ekki... og það var svo yndislegt að sofa til kl 11. sko að vísu eins og veðrið er þá hefði ég átt að vera löngu vöknuð og farin út en ég held að ég þurfti þennan auka svefn.. enda er dagurinn ekki búinn ennþá.. vona bara að veðrið haldist.. því nú ætla ég að fara að fá mér morgunmat og koma mér svo út með bækurnar mínar og fynna mér góðann stað til að setjast á og lesa.. Stórt knús til allra ;o)

fimmtudagur, maí 12, 2005

heim 12 Júní

jibbí ég er loksins komin með heimferðardag.. fékk semsagt að vita síðasta fimmtudag að ég fæ að taka síðasta prófið 10 júní og er nú búin að panta miða heim.. og minni er farið að hlakka rosalega mikið til... koma heim og hitta alla... sjá litlu frænku mína, litlu stelpuna hans Halldórs og svo verður náttúrulega bumbubúinn hjá Margréti og Geirmundi kominn í heiminn þegar ég kem heim og það verður bara gaman að sjá allar þessar dúllur og svo hlakkar mig náttúrulegar líka til að sjá hann Valgeir minn sem verður orðinn stóribróðir.
er að vísu ekki komin með húsnæði í R-vík en það reddast.. síðast þegar ég kíkti á biðlistann þá var ég nr 11 og 14.. :)
sé ykkur eftir mánuð.

mánudagur, maí 09, 2005

Ótrúlegt hvað þessir norðmenn eru seinir að koma sér í að gera hlutina

Jamms svona eru þeir þessir nossarar.. eins og þið flest vitið þá höfum við verið sjónvarpsherbergislaus síðan í janúar og sjónvarpslaus síðan í nóvember en þá bilaði þessi indislegi imbakassi... en jæja loksins núna í byrjun maí þá kom upp miði niðri sem tilkynnti okkur um það að nú væri möguleiki á að það yrðu kannski einhver læti hér í byggingunni á daginn þar sem þetta indislega herbergi á nú að breytast í íbúð... semsagt í staðin fyrir að fá eitthvað gamalt sjónvarp og leifa okkur að hafa herbergið þar til núna eða jafnvel að leifa okkur að hafa þetta herbergi án sjónvarps eða fara strax í það að breyta því... þá hafa þau hjá SIA ákveðið að trufla okkur frekar við próflesturinn með látum og þessháttar... ekki er ég að skilja þessa blessuðu norðmenn.. enda er mín eiginlega bara farin að bíða eftir að komast heim.. væri alveg til í að hafa prófin mín svoldið fyrr en þau eru ekki fyrr en 31. maí, 2 og 10 júní.. ekkert gaman jú jú ég hef nógan tíma til að lesa fyrir þau en samt.. þetta er nú einum of seint... en jæja ætli ég verði ekki að fara að halda áfram að lesa.. í rigningunni

fimmtudagur, maí 05, 2005

loksins komin með dagsetningu á síðasta prófið

jæja þá er það loksins komið... var að fá mail frá einum kennaranum og ég fæ að taka síðasta prófið 10 júní.. hef aldrey verið búin í prófum svona seint.. en jæja svona er þetta, maður ræður þessu ekki öllu en mig hlakkar til á næsta ári þegar ég verð með eðlilega próftöflu (vona ég) semsagt ekki próf fram í júní.... en jæja ætli ég verði ekki að fara að halda áfram að lesa, þarf víst að lesa nokkrar bækur fyrir þessi próf..

sunnudagur, maí 01, 2005

Bergen ferðin sem varð að Stavanger ferð

Við ákváðum semsagt nokkur að skella okkur til Bergen um helgina, laugardag til sunnudags, en þau sem sáu um skipulagninguna klikkuðu aðeins.. við tókum rútuna til Stavanger (sem ég mæli ekki með... vegurinn er svoldið mikið zikk zakk...) en jæja við komunmst til Stavanger heilu á höldnu en viti menn þá var ferjan til Bergen löngu farinn og næsta ferja ekki fyrr en 12 næsta dag. þannig að við ákváðum bara að vera í Stavanger og fórum á upplýsinga miðstöðina til að athuga hvort það væri hægt að benda okkur á farfugla heimili, eða hótel... og viti menn við fengum barasta æðislega þjónustu þar.. stelpan reddaði okkur bara einn tveir og þrír.. voru að vísu í 2 herbergjum strákarnir (Ben og Kris) í öðru og við stelpurnar (ég, Fanny, Marta og Gosia) í hinu.. á laugardenginum löbbuðum við semsagt um Stavanger og skoðuðum margt og mikið og fórum meira að segja á djammið um kvöldið.. og það ætla ég að gera aftur (ef einhver vill koma með... ) vorum að vísu ekkert rosalega lengi þar sem við vöknuðum svo snemma .. en það var samt mjög gaman.. og svo á í dag sunnudag tókum við því bara rólega fram að hádegi og borðuðum morgun mat í rólegheitunum og fórum svo um hádegi í siglingu um Lysefjord.. rosa flottt. og svo tókum við því bara rólega þar til við fórum heim.. og komum aftur til Kristiansand um kl. hálf ellefu í kvöld en í það skiptið tókum við lestina.. ekki alveg til í að fara zikk zakk með rútunni aftur... en allt í allt var þetta rosalega skemtinleg ferð þó svo að hún hafi verið frekar stutt...

P.S. ég er búin að setja fullt af nýjum myndum inn bæði úr ferðinni og svo eitthvað meira líka í Kristiansand albúmið...

en nú er ég farin að sova Góða nótt