Hvað gera prakkarar í þessu?

nautnaseggur

Nafn:
Staðsetning: Bifröst, Borgarbyggð, Iceland

miðvikudagur, júlí 27, 2005

dugleg stelpa

nei ég er ekki að kalla mig duglega stelpu vegna þess að ég er að blogga annann daginn í röð... heldur vegna þess að hún Helga litla var svo dugleg í gærkvöldi og setti hillurnar í hillusamstæðunni sinni saman.. sko skáparnir voru að vísu saman settir og fínir en það átti eftir að setja hillurnar á milli saman, þar sem að skrúfurnar í þær fundust ekki... en svo fann ég þær og þá var náttúrulega enginn til að hjálpa mér ... það var að vísu augljóst hvar hvaða hilla átti að fara og það að setja sjálfar hillurnar saman var svossum ekki erfitt en það að setja þær á milli skápanna var allt önnur saga... fyrst þurftir ég að reysa þær við og setja þær við annann skápinn og svo íta hinum að.. humm ekki það auðveldasta fyrir eina manneskju en mér tókst það... þannig að ég er dugleg stelpa.... en það eru samt fullt af skrúfum þarna sem ég hef ekki hugmynd hvar eiga að vera en mér síndist þær ekki eiga að vera í hillusamstæðunni minni.... en nú verð ég víst að fara að vinna því að þar sem verslunnarmanna helgin er að ganga í garð og stór mánaðarmót þar að auki þá verður víst brjálað að gera.

þriðjudagur, júlí 26, 2005

hummmmm

ég var að fá smá kvörtun, ég blogga víst ekki nóg.... og ætli maður verði þá ekki að bæta svolítið úr því...... hef svossum ekki mikið að segja jú ég er flutt og svo fór ég í tívolí með henni Svövu minn og tvemur ungum... og það var rosa gaman..... og svo var smá partí á laugardaginn, fámennt en góðmennt.... og jú ég brann líka smá á laugardaginn... en lá svo í leti á sunnudaginn.... ok ég er greininlega ekki í stuði ti að skirfa núna þannig að ég held ég stoppi bara núna....

mánudagur, júlí 18, 2005

flutningsdagur 1

Þá er komið að því.. ég er að flytja í dag.... fæ að vísu ekki alveg allt núna en megnið af því... fæ allavega sjónvarpið og eldhúsáhöldin mín.. og svefnsófann.... fæ víst ekki rúmið mitt strax en það er allt í lagi... það kemst víst ekki fyrir í bílnum... en ég mun allavega sofa hér í R-vík í nótt.... og tek svo bara strætó í vinnunna og labba heim.. ;o) svo ég verð víst að fara að læra á strætó aftur.... vona bara að það sé ekki búið að breyta leiðinni minni.... en jæja ætli ég veriði ekki að fara að halda áfram að vinna.... læt vita hvernig gengur... ;o)

þriðjudagur, júlí 12, 2005

alveg að fara að flytja

fór að ná í lykilinn að íbúðinni áðan..... og vá ég sem hélt að ég væri léleg í að þrífa... en það er greininlegt að ég er það ekki. ég fór semsagt að skoða íbúðina áðan og ég varð barasta fyrir smá sjokki.. hann var að vísu búin að vara mig við að það væri ekki alveg nógu vel þrifið en já.. það var semsagt ekki vel þrifið... ætla að fara á morgun að þrífa svo að ég geti farið að flytja inn. vonandi fyrir helgi. fer allt eftir því hvernig gengur að þrífa og hvenær við systkinin höfum tíma og það má náttúrulega ekki rigna því við ætlum að fara með þetta allt í kerru. jú við höfum eitthvað til að setja yfir svo að það ætti að bjargast.. annars er ekkert að frétta af mér... bara vinna, sofa og borða.... og jú svo fer ég á milli með Ástu frænku... en það fer víst að enda bráðum nema maður snýki kannski far heim einstaka föstudag.... en það kemur bara í ljós... en nú held ég ég hætti núna og fari að spjalla við hana systur mína...

föstudagur, júlí 08, 2005

vinnuvikan búin

losksins er vinnuvikan búin.. og mín bara fegin að getað kvíllt sig smá... það verður nú samt engin rólegheit um helgina, ætla að reyna að fynna til dótið mitt svo ég geti flutt í næstu viku. vona bara að íbúðin sé ágætlega vel útlítandi svo að ég þurfi ekki að bíða lengur eftir henni.. er farinn að langa svoldið að sofa í mínu eiginn rúmmi og vera bara út af fyrir mig... en jæja nú verð ég víst að hætta og fara að skutlast með hana systur mína... þannig að ég segi bara meira síðar... eða eitthvað..........

fimmtudagur, júlí 07, 2005

Orðlaus

Ég er gersamlega orðlaus.. var að horfa á fréttirnar í hádegishléinu mínu og ég er barasta ennþá í sjokki. það er ekki gaman að horfa á svona hrilling.. þessi ógeð sem voru að sprengja í neðanjarðarlestum í London... ég get bara ekki sagt hvað mér fynnst... ég er semsagt gersamlega orðlaus.