komin úr blogg pásu
já ég veit ég er ekki búin að blogga alveg rosalega lengi, en eins og þeir sem þekkja mig vita hef ég verið á kafi í að skrifa B.A. ritgerð og er hún nú loksins búin.. og er ég því mjög fegin... það hefur svossum ekki mikið drifið á daga mína þennan síðasta mánuð, mest bara verið að læra en jú auðvitað verður maðru aðeins að skemmta sér líka. fór til dæmis í haustferðina með starfsmannafélagi Spv, og það var sko gaman við fórum í rafting niður Hvítá og svo var farið í sund í Reykholtslaug og svo borðað á Básnum í ölfusi á efitr.. og þar sem hausinn á mér ekki alveg að virka núna þá man ég ekki meira... en nú ætla ég að halda áfram að læra...
