brostu
þá er víst komin ný skólavika... gaman gaman.... þarf að skila 3 verkefnum í þessari viku... þar á meðal 2 i dag og 1 á morgun... næsta vika er aðeins skárri þá þarf ég bara að skila 2 verkefnum gaman gaman... en svona er víst að vera í skóla.. fullt af verkefnum get varla beðið eftir að útskrifast í vor, og far að gera eitthvað annað, eignast smá pening og svoleiðis... og svo er ég líka að spá í að kíkja aðeins til noregs í sumar, eða réttara sagt er ég, Marit og Gosia að spá í að hittast þar í sumar.. það er orðið rúmt ár síðan ég sá stelpurnar síðast og ég væri alveg til í að kíkja aðeins á þær... eða réttara sagt að hitta þær í noregi þar sem önnur þeirra býr í Hollandi og hin í Póllandi.. en það kemur allt í ljós síðar.. fer víst allt eftir hvort maður hafi efni á þessu... en nú verð ég vist að halda áfram að læra svo ég geti skilað verkefninu mínu í dag..
