Hvað gera prakkarar í þessu?

nautnaseggur

Nafn:
Staðsetning: Bifröst, Borgarbyggð, Iceland

mánudagur, febrúar 20, 2006

Eurovision

þá er það víst komið í ljós hver fer fyrir okkar hönd í eurovision keppnina.. skiptar skoðanir eru á þessu lagi og ég ætla svossum ekki að segja mína skoðun. allavega ekki fyrr en það er komið er í ljós hvernig lögn frá hinum norðurlöndunum eru.. norska http://www7.nrk.no/nrkplayer/default.aspx?klipp_id=138737 og danska http://www.dr.dk/grandprix/asx/sang4.asx lagið eru komin nú er bara að bíða eftir sænska laginu og því finnska...

það var afmælis/eurovision partý hjá Siggu.. og vil ég þakka henni fyrir gott partý.. þó svo að ég hafi stoppað stutt... ... ok ég veit að ég er að nota mikið af þessum kallamyndur... þeir eru bara svo krúttlegir... en nú ætla ég að fara að halda áfram að gera það sem ég var að gera...

miðvikudagur, febrúar 15, 2006

Jibbí frí í skólanum í næstu viku

það er að vísu ekki beint frí heldur er það víst þannig að það er verkefna vika eða lestrarvika.. þannig að maður þarf víst að læra en sleppur við að mæta í skólann í staðinn... en þetta merkir víst að skólaárið er uþb hálfnað... og það þýðir að það ferað stittast í það að ég útskrifist... Jibbí
get varla beðið...

Svava var víst búin að klukka mig um daginn

og ætli maður verði ekki að svara því svona einu sinni

4 staðir sem ég hef búið á
Selfoss
Osló
Reykjavík
Kristiansand

4 störf sem ég hef unnið um æfina
afgreiðsludama í KÁ Selfossi
þjónustufulltrúi Spv
Flokkstjóri í unglingavinnunni í Hveragerði
Skalli á Selfossi

4 bíómyndir sem ég get horft á aftur og aftur
Police Academy
Blade
Ocean´s elleven
Ocean´s twelve

4 sjónvarpsþættir sem mér líkar
Csi
house
threshold
Charmed

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum
Noregur stór hluti sunnan Bergen
Algarve Portúgal
Holland
Dublin

4síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg
mbl
myspace
db.no
hi.is

4 matarkyns sem ég held uppá
grænmeti
kjúklingur
kálböglar
slátur

4 bækur sem ég les oft
Ha lesa bók oftar en einu sinni…
það gerist sko ekki oft og þá eru það námsbækur…

4 staðir sem ég vildi freka vera á núna
Útí íslenskri sveit
á góðum stað með góðum vinum
á heitum stað
I´m not telling

4 bloggarar sem ég klukka
Fjóla Dögg
Gunna
Valgeri Hugberg
Heiða

föstudagur, febrúar 10, 2006

Ég er alger snilli

híhíhí.... eins og sumir vita þá hefur dvd spilarinn minn verið bilaður í þó nokkurn tíma, en samt sem áður ákvað ég að prufa hann í gær þar sem ég var ekki alveg í sturði að gera youga æfinagarnar fyrir framan tölvuna, en áhvað í staðinn að hafa myndina tvöfallda í sjónvarpinu, en ýtti svo á einhvern takka og viti menn myndin varð eðlileg... hví var ég ekki búin að prufa þetta áður.. ég sem hélt að ég hefði verið búin að ýta á alla takkana þegar spilarinn bilaði... þetta er alveg týpískt. en svona er þetta víst bara stundum...

og svo er auðvitað þorrablót hjá Ingu og Gumma í kvöld, það verður örugglega gaman.. frétti samt að ég og Inga verðum kannski einu stelpurnar þarna eða það var allavega staðan síðast þegar Inga vissi. En það verður örugglega samt gaman. :)

fimmtudagur, febrúar 09, 2006

byrjuð að vinna

jæja þá er ég loksins komin með hlutastarf. fékk vinnu hjá 365 ljósvakamiðlum, fyrsti dagurinn minn var í gær og ég var semsagt set í þjálfun þ.e. ég sit hjá einni sem hefur unnið þarna í svoldinn tíma og er að fylgjast með.. ég hef svossum ekki mikið að segja í dag frekar en fyrri daginn, er að fara að vinna í dag aftur frá kl 2 til 10 og vona bara að allt gangi vel í dag líka og vonandi læri ég eitthvað meira.. lengra verður þetta víst ekki í dag. best að fara að smirja sér eitthvað í kvöldmatinn.

mánudagur, febrúar 06, 2006

hva skal jeg skrive i dag???

þá er komin ný vika.. og eins og venjulega ætla ég nú ekki að segja mikið hér.. er meira fyrir að tala við fólk beint, ég var aðeins duglegri í ræktinni í síðustu viku heldur en í vikunni þar áður.. og svo fékk ég lánaðann yoga disk hjá henni Ingu minni (þetta er að vísu bara svona prufu diskur) en það gekk ágætlega. jú fann fyrir vöðvum sem ég er ekki alveg vön að finna fyrir en fann líka að ég er að styrkjast öll, þó svo að ég er ekki að lyfta mikið.. þar sem ég er meita að einbeita mér að því að losa mig við þennan mallakút.. en nóg um það..

Við Inga horfðum á eurovision forkepnina á laugardaginn og þetta voru að ég held bara ágætis lög sem komust áfram. og svo þar sem tja eins og allavega margir segja að ég sé hálfgerður norsari þá kíkti ég inn á www.nrk.no og kíkti á norksku forkepnina og þeir eru búnir að ákveða hvaða lag fari fyrir þeirra hönd í keppnina í vor, þetta er bara ágætis lag sem þeir ætla að senda (hægt að hlusta hér) http://www7.nrk.no/nrkplayer/default.aspx?klipp_id=138737 það eru að vísu betri hljóðgæði ef þið veljið að horfa á það, en þá þurfið þið að horfa á alla kepnina eða leita að laginu þar.. það voru að vísu fullt af öðrum góðum lögum þarna líka...

en ætli ég verði ekki að halda áfram að læra núna þar sem ég á víst að skila verkefni í dag og á morgun en ég ætla aðreyna að klára þau bæði í dag...

Og já svona fyrir þá sem ekki vita það ennþá þá er ég komin með vinnu og byrja að vinna á miðvikudaginn... segi meira frá því síðar ;)