Hvað gera prakkarar í þessu?

nautnaseggur

Nafn:
Staðsetning: Bifröst, Borgarbyggð, Iceland

fimmtudagur, apríl 20, 2006

Sumardagurinn fyrsti loks genginn í garð


jæja þá er loksins komið sumar... eða svo segir dagatalið allavega... dagurinn virðist ætla að verða góður allavega við fyrstu sýn. gott veður og alles... og spurning um að fara að skella sér út þegar kallinn minn vaknar.

Fann þessa mynd á google og bara varð að setja hana svona fyrst það er að koma sumar.
og þar sem ég er búin að fatta hvernig hún Inga mín gerir þetta þá er aldrei að vita nema maður fari að setja fleiri myndir hér inn... en nú ætla ég að kveðja í bili og fara að dunda mér við eitthvað annað...

fimmtudagur, apríl 06, 2006

úps

ég skrifaði víst linkinn inn á síðu nfsu vitlaust en ég er búin að laga það núna þannig að þeir sem vilja geta kíkt þar inn...

talandi um linka þá ákvað ég að setja inn linkinn á eurovisionsíðuna hér...
http://www.eurovision.tv/english/index.htm það er nefninlega hægt að kíkja á öll lögin inni á þessari síðu rosa flott og allt það...

annars er ekki mikið að frétta síðasti dagurinn í skólanum var hjá mér í dag og þá er bara eftir að gera 2 eða 3 lítil verkefni 1 stórt lokaverkefni og lesa undir 3 próf... gaman gaman... og svo kemur sumar ;)

mánudagur, apríl 03, 2006

Let it be.

Þá er enn ein helgin búin og síðasta skólavikan hjá mér byrjuð... já skólinn er búin svoldið snemma í ár... en svo tekur bara geðveikur próflestur og verkefna skil við... þannig að það verður ekki slegið slöku við... sérstaklega það sem stefnt er á útskrift í vor...

en út í annað og þá einnig ástæðu fyrir sagnarinnar... Ég, Inga og Heiða skelltum okkur á leikrit í gærkvölid, nánar tiltekið á leikrit/söngleikur Fjölbrautaskóla Suðurland sem sýnt var í gamala frystihúsinu á Stokkseyri... þetta er semsagt leikrit með Bítlalögum sem er sérstaklega samið fyrir Fsu. Og hún litla systir mín hún Fjóla Dögg bæði syngur og spilar á fiðluna í sýningunni þannig að auðvitað fórmaður og kíkti á hana og hún stóð sig bara vel stúlkan, eins og ávalt (að mínu mati stendur hún sig alltaf vel.. enda er ég stórasystir) og jú auðvitað stóðu þau sig öll vel... Þetta var bara meiriháttar flott sýning hjá þeim og þau eiga hrós skilið... og ef einhverjum langar að sjá það þá er mér sagt að það verði einhverjar sýningar um næstu helgi... það verður örugglega auglýst á vef www.nfsu.is
en nú er víst kominn tími á það að ég fari að drífa mig í skólann...