Hvað gera prakkarar í þessu?

nautnaseggur

Nafn:
Staðsetning: Bifröst, Borgarbyggð, Iceland

þriðjudagur, júní 27, 2006

Útskrifuð með BA í norsku

Þá er það víst búið. Mín komin formlega með BA í norsku. Útskriftin gekk bara bærilega.. athöfnin var að vísu svolítið löng, 2 og hálfur tími... mér fannst það að vísu allt í lagi þar sem ég sat í góðum stól á gólfi Laugardalshallarinnar.. Annað fannst hinum sem sátu uppi í stúku... Sætin þar eru allavega ekki gerð fyrir stóra menn eins og hann Árna minn... Eftir athöfnina var brunað austur fyrir fjall að heimili foreldra minna þar sem haldin var veisla fyrir fjölskyldu og vini. Ekki var þó fjölmennt meðal annars vegna veikinda og sumarleyfisferða.
Í fyrsta skipti í mörg ár vorum við 2 sem útskrifuðumst úr norskunni, semsagt metfjöldi í ár.

fimmtudagur, júní 15, 2006

Akureyri hér kem ég

Jæja nú er víst komið að því að ég fæ smá sumarfrí alveg 1 og hálfan dag... planið er nefninlega að skreppa á akureyri núna eftir hádegi og halda upp á það að hann Gummi sé orðin 29 ára.. jebb hann er orðinn jafn gamall mér... aftur... nú er bara að vona að við fáum gott veður um helgina um að gera að krossleggja fingur og tær...
annars er allt gott að frétt af okkur skötuhjúum, Árni er í sumarfríi en ekki ég, ég fæ víst ekkert svoleiðis.. tja nema þennann eina og hálfa dag. ég væri alveg til í að vera í fríi með honum... en maður getur víst ekki fengið allt sem maður vill. en nú ætla ég fara að vinna smá fram að hádegi.

föstudagur, júní 02, 2006

123456789

sko ég kann alveg að telja.... ;) hí hí ég bara varð... vissi ekki hvað ég átti að setja í fyrirsögn... en nú er víst komin júní og svona fyrir þá sem ég er ekki búin að senda sms á þá er ég farin að nota gamla númerið mitt aftur... ef þið eruð búin aðgleyma því kíkið þá í símaskránna... að vísu þurfið þið þá að vita hvar ég á heima en flest ykkar vita það nú... :o)
en nú er víst kominn tíma á að ég fari að halda áfram að vinna... það eru náttúrulega mánaðarmót og þá er náttúrulega brjálað að gera í þessum bönkum...