Hvað gera prakkarar í þessu?

nautnaseggur

Nafn:
Staðsetning: Bifröst, Borgarbyggð, Iceland

fimmtudagur, ágúst 24, 2006

Flutt í Hreðarvatnsskála

Nú eru kominar 2 vikur síðan við fluttum í Borgarfjörðinn... OG GUMMI ER SÁ EINI SEM HEFUR KOMIÐ Í HEIMSÓKN!!!! Jebbs við höfum bara fengið einn af vinum okkar í heimsókn enn sem komið er...
En að öðru.. Allt gengur vel og við erum búin að koma okkur ágætlerga fyrir hér í sveitinni. Ég byrjuð að vinna á leikskólanum og Árni líka... Við fáum að njóta þess hversu góður kokkur hann er og öllum líkar vel... nammi namm...
Það gerist svossum ekki mikið hér í sveitinni en við höfum samt nóg að gera... Síðustu helgi fór ég og hin sem erum og/eða munum vinna á leikskólanum norður á Akureyri að læra um hjallastefnuna þ.e. þeir sem gátu komið.. Árni kom ekki með þar sem hann hafði annað að gera.. En við sem fórum skemmtum okkur vel og lærðum mikið...
Annars er allt gott að frétta af okkur skötuhjúum og þar sem það er svo stutt í vinnuna hjá okkur þá annaðhvort göngum við eða hjólum í vinnuna... og svo erum við meira að segja búin að ganga á Grábrók... sem er svossum ekki ekki erfitt þar sem það er stigi upp á fjallið og svo vel troðnir slóðir þarna uppá.. og nátúrulega æðislegt útsýni... sem við munum pottþétt verða aðnjótandi aftur síðar... og kannski í eitthvert að þessum skiptum sem við gerum það munu vinir okkar gera það einnig...

föstudagur, ágúst 04, 2006

nú styttist í þetta allt saman...

Já, það er víst.. síðar í dag skal haldið út í eyjar þar sem við munum vera í húsi einu á götu sem ég man ekki hvað heitir.. en er víst ekki mjög langt frá dalnum... og nú er bara að bíða og vona að það rætist eitthvað úr þessu veðri... ég, Árni, Inga, Gummi, Óli og einhverjir fleiri förum með Herjólfi klukkan 19:30... við verðum komin til eyja um klukkan 22 í kvöld ef allt gengur vel... og síðan er planið að halda heim á leið með herjólfi á mánudaginn og svo verður haldið upp á Bifröst fljótlega í næstu viku... ellta sæta strákinn ;O) æ þið vitið þennan stóra ljóshærða, sem er að vísu nýbúinn að raka á sér hausinn þannig að hann er ekki með hár eins og er.... ok ég er farin að rugla smá... hí hí... það er svo gaman... en jæja ætli ég veriði ekki að halda áfram að vinna, verð víst að vera dugleg núna síðasta daginn minn hjá Sparisjóð Vélstjóra... þar til síðar...