Nafn:
Staðsetning: Bifröst, Borgarbyggð, Iceland

mánudagur, júní 21, 2004

Í sól og sumaryl

Þá er byrjuð ný vinnuvika.. ég væri sko alveg til í að vera í fríi núna, í sólinni. En nei nei þar sem maður er ennþá að dunda sér í skóla þá fær maður víst ekkert svoleiðis.. og það virðast ætla að verða nokkur ár þangað til.. sko ef ég held áfram í þessu sem ég er að spá í að halda áfram í, verð kannski búin fyrir Þrítugt.. en bara kannski. gæti skypt um skoðun eins og mín sé von og vís.... ég er svo tíbískur tvíburi er alltaf að skipta um skoðun, langar að gera þetta eina stundina en svo eitthvað allt annað eftir 2 mínútur... Þetta er meira að segja frið að fara í taugarnar á mér. eina sem ég veti með vissu er að ég þarf að komast í klippingu og litun en ég bara nenni því ekki núna.. ég er eitthvað skrítin...

og ok ég veit að það eru stafsetningavillur í þessu en það er bannað að skamma mig... ef þið skammið mig þá fer ég bara að skrifa á norsku og hana nú.

bara smá svona hjáleið... eins og sagt er, ég bara varð að segja þetta því ég sá að ég held stafsetninga villu hjá mér en ég er bara ekki viss hvort þetta sé rétt eða ei.

Nú er maður líka orðin bíllaus aftur, hann bróðir minn er kominn heim og hann á náttúrulega bílinn sem ég hef verið á og ég skilaði honum meira að segja heilum, ofboðslega dugleg.
Þannig að nú er maður aftur farin að hjóla og það er bara þægilegt, sérstaklega þegar það er svona gott veður, vona bara að veðrið verði svona áfram.

Jæja nú ætla ég að hætta þessu og fara að vinna, meira....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home