Heia Danmark
Fór í 12 tíma siglingu í nótt. það var svona stúdentaferð til danmerkur, við silgdum til Hirtshls og stoppuðum þar í svona klukkutíma og silgdum svo heim aftur.. voða gaman, og auðvitað var drukkið svoldið á leiðinni. við fórum kl. 19 í gær kvöldi og komum svo aftur til Kristiansand klukkan 7 í morgun.. þannig að ég er eiginlega búin að sofa í allan dag.. skiljanlea því ekki svaf ég á bátnum, ég var ekki með klefa og vissi líka að ef að ég færi að sofa þá myndi ég bara verða ennþá þreytari, en ég er búin að sofa vel í dag, að vísu í skorpum en það er allt í lagi og svo þarf ég víst líka að fara bráðum að sofa því að ég þarf að mæta í skólann klukkan 9:15 í fyrramálið og það er svo leiðinlegur tími, ekki það að efnið sé leiðinlegt mér fynnst það skemmtinlegt en kennarinn er ekki beint að gera það skemmtinlegra því að fyrirlesturinn er svo þurr að það er ekki eðlilegt. þetta er áfangi sem tekur fyrir tungumálin á norðurlöndum og hvernig þau þróuðust. jæja mér fynnst þetta allavega heyllandi fag en það er ekkert gaman að fara í tíma þegar kennslan er þurr. en jæja nóg um það ég held að ég verði að fara að sofa núna þannig að ég segi bara
góða nótt
góða nótt

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home