Nafn:
Staðsetning: Bifröst, Borgarbyggð, Iceland

laugardagur, október 09, 2004

Það er farið að vera helv.. kalt hérna

Ég var að koma heim núna rétt áðan og það er orðið drullukallt hérna, akkurat núna eru um 4°c. Bara kalt. held barasta að maður þurfi bráðum að fara að ganga í gammósíum. En jæja held ég þurfi að fara að leita að skósmið hérna, ég keypti mér nefninlega skó hérna fyrir svotlu síðan, sko svona támjóir með pinnahæl, og viti menn nú er tappinn undann skónum barasta búinn og ég kominn niður eða upp í naglann eða hvað sem þetta kallast. er ekki alveg að fatta mig og skó, og sér í lagi mig, skó og skrúfur/nagla. en jæja ég held að það sé kominn tími fyrir svefn núna. þannig að ég held að ég segi bara

Góða nótt.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home