Vá hvað það hlínar fljótt
þegar ég vaknaði um 9 leitið í morgun var -6° og núna um klukkan 2 er komin +1° vona bara að það haldi áfram að hitna svona..... annars er ég búin að vera rosalega dugleg að þrífa herbergið mitt í morgun og ekki nóg með það að ég hafi þrifið þá er ég búin að breyta líka.... dreif mig loksins í að setja skrifboðið við gluggann... var ekki alveg að fíla það að sitja með bakið í gluggan þegar ég er að læra er einhvernvegin miklu hrifnari af því að sitja við gluggann hef alltaf verið það.....
Ég og Carolin fórum á djammið á laugardaginn og það var sko fjör...við fórum á Twist and Shout og þar var rosalega góð tónlist og trommari sem spilaði með tónlistinni bara gaman og við dönsuðum næstum stanslaust í 3 tíma enda var okkur orðið svoldið illt í fótunum þegar yfir lauk en þetta var svo þess virði... ég komst aftur að því að norðmenn vita EKKI hvað kokteille er... ég fór á barinn og gat ekki ákveðið mig hvað ég vildi svo að ég bað um kokteil sem var ekki sætur og ekki of súr.. en hvað haldið þið að ég hafi fengið..... vodka í spritr og rauða sírópið sem ég man ekki alveg í augnablikinu hvað heitir..... ég hef gert þetta á bar heima og þá hef ég alltaf fengið almennilegann kokteil og það fyrir sama verð og ég var að borga fyrir þetta sull hér.... þannig að ég er komin á þá skoðun að ef ég vilji fá eitthvað almennilegt að drekka þá verð ég bara að fá mér það sjálf áður en ég fer út... og drekka bara vatn úti á djamminu... svona eins og maður gerði hér í gamla daga þegar ekki mátti legnur fara með áfengi inn á böllin..... en jæja ætli ég verði ekki að fara að klára þetta tiltektar æði mitt og fara að vaska upp
eða eitthvað... og fara svo að læra...

|
|

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home