alveg að fara að flytja
fór að ná í lykilinn að íbúðinni áðan..... og vá ég sem hélt að ég væri léleg í að þrífa... en það er greininlegt að ég er það ekki. ég fór semsagt að skoða íbúðina áðan og ég varð barasta fyrir smá sjokki.. hann var að vísu búin að vara mig við að það væri ekki alveg nógu vel þrifið en já.. það var semsagt ekki vel þrifið... ætla að fara á morgun að þrífa svo að ég geti farið að flytja inn. vonandi fyrir helgi. fer allt eftir því hvernig gengur að þrífa og hvenær við systkinin höfum tíma og það má náttúrulega ekki rigna því við ætlum að fara með þetta allt í kerru. jú við höfum eitthvað til að setja yfir svo að það ætti að bjargast.. annars er ekkert að frétta af mér... bara vinna, sofa og borða.... og jú svo fer ég á milli með Ástu frænku... en það fer víst að enda bráðum nema maður snýki kannski far heim einstaka föstudag.... en það kemur bara í ljós... en nú held ég ég hætti núna og fari að spjalla við hana systur mína...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home