Nafn:
Staðsetning: Bifröst, Borgarbyggð, Iceland

mánudagur, febrúar 06, 2006

hva skal jeg skrive i dag???

þá er komin ný vika.. og eins og venjulega ætla ég nú ekki að segja mikið hér.. er meira fyrir að tala við fólk beint, ég var aðeins duglegri í ræktinni í síðustu viku heldur en í vikunni þar áður.. og svo fékk ég lánaðann yoga disk hjá henni Ingu minni (þetta er að vísu bara svona prufu diskur) en það gekk ágætlega. jú fann fyrir vöðvum sem ég er ekki alveg vön að finna fyrir en fann líka að ég er að styrkjast öll, þó svo að ég er ekki að lyfta mikið.. þar sem ég er meita að einbeita mér að því að losa mig við þennan mallakút.. en nóg um það..

Við Inga horfðum á eurovision forkepnina á laugardaginn og þetta voru að ég held bara ágætis lög sem komust áfram. og svo þar sem tja eins og allavega margir segja að ég sé hálfgerður norsari þá kíkti ég inn á www.nrk.no og kíkti á norksku forkepnina og þeir eru búnir að ákveða hvaða lag fari fyrir þeirra hönd í keppnina í vor, þetta er bara ágætis lag sem þeir ætla að senda (hægt að hlusta hér) http://www7.nrk.no/nrkplayer/default.aspx?klipp_id=138737 það eru að vísu betri hljóðgæði ef þið veljið að horfa á það, en þá þurfið þið að horfa á alla kepnina eða leita að laginu þar.. það voru að vísu fullt af öðrum góðum lögum þarna líka...

en ætli ég verði ekki að halda áfram að læra núna þar sem ég á víst að skila verkefni í dag og á morgun en ég ætla aðreyna að klára þau bæði í dag...

Og já svona fyrir þá sem ekki vita það ennþá þá er ég komin með vinnu og byrja að vinna á miðvikudaginn... segi meira frá því síðar ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home