Útskrifuð með BA í norsku
Þá er það víst búið. Mín komin formlega með BA í norsku. Útskriftin gekk bara bærilega.. athöfnin var að vísu svolítið löng, 2 og hálfur tími... mér fannst það að vísu allt í lagi þar sem ég sat í góðum stól á gólfi Laugardalshallarinnar.. Annað fannst hinum sem sátu uppi í stúku... Sætin þar eru allavega ekki gerð fyrir stóra menn eins og hann Árna minn... Eftir athöfnina var brunað austur fyrir fjall að heimili foreldra minna þar sem haldin var veisla fyrir fjölskyldu og vini. Ekki var þó fjölmennt meðal annars vegna veikinda og sumarleyfisferða.
Í fyrsta skipti í mörg ár vorum við 2 sem útskrifuðumst úr norskunni, semsagt metfjöldi í ár.
Í fyrsta skipti í mörg ár vorum við 2 sem útskrifuðumst úr norskunni, semsagt metfjöldi í ár.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home