Nafn:
Staðsetning: Bifröst, Borgarbyggð, Iceland

þriðjudagur, júní 01, 2004

Þá er maður komin í Reykjavíkina aftur

þetta var bara ágætlega notuð helgi... fór í bíó með litlu systir á föstudaginn. við fótum á Taxi 3 og það er bara ágætis mynd. Við fórum í 10 bíó og hvað haldið þig sú stutta gerði(hún er í rauninni ekkert lítil lengur hún er næstu jafn stór og ég), hún náði að sofna í bíó... En jæja hún var bara orðin dáldið þreitt greiið. og svo fórum við saman með rútunni austur á laugardaginn. Fórum bara í rólegheitin heima hjá mömmu og pabba...
Valgeir litli er í pössun hjá Sigga afa og Ólöfu ömmu á meðan mamman og pabbin eru í Kína (og já þau eru í alvörunni í Kína). Við Valgeir sváfum í sama hebergi og hann þurfti náttúrulega að vekja frænku sína um leið og hann vaknaði og var ekkert að sætta sig við það að hún vildi fá að sofa svoldið lengur.. en jæja svona eru þessi börn víst..

Og svo var farið í fermingu í Skálholtskirkju, í góða veðrinu á Hvítasunnudag. Það var verið að ferma hana Dýrfinnu (systir hennar Margrétar (þeirrar sem er í Kína)) það var bara gott veður..

og svo var bara verið í rólegheitum um kvöldið horft á vídíó og svoleiðis... og svo var auðvitað komið aftur í reykjavíkina í gær og rútan var bara sein... þannig að maður kom miklu seinna heldur en maður ætlaði sér.... en svona er þetta víst þegar það er mikil umferð.... en jæja nú ætla ég að fara aftur að vinna eða eitthvað... og svo er ég mikið að spá í það hvort maður ætti ekki bara að fá sér eitthvað rosalega gott í gogginn þegar maður er búin í vinnunni og taka því bara rólega í kvöld og fara snemma að sofa..

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home