Burrrr burrr burrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr
| nei ég er ekki í bíla leik, það er kalt úti. ég var búin að vera að bíða eftir smá kulda en ekki alveg svona mikið því þessi kuldi bítur :o( eða það held ég allavega ég er búin að vera rosalega dugleg stelpa og vera bara inni og kvíla mig og láta mér ekki verða kalt... og láta mér batna líka auðvitað. ég er nefninlega ekki að nenna að vera veik sérstaklega þegar maður er ekki almennilega veikur með hita og svoleiðis. en jæja nóg um veikinda kjaftæði
það eru 3 afmæli í famelíunni í næstu viku, fyrst er það hún mamma mín sem á afmæli á morgun og svo hún Margrét á þriðjudaginn og svo litla (stóra) elskan mín hann Valgeir á miðvikudaginn og þetta er í fyrsta skipti sem ég missi af afmælinu hans en hann fær bara stórt stórt knús frá Helgu frænku þegar hún kemur heim ;o) Til hamingju með afmælin dúllurnar mínar. |

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home