Ég og Marit vorum rosalega duglegar núna áðan, ákváðum að skreppa í smá göngutúr uppi á Baneheia sem er bara hér rétt fyrir ofan og tíndum laufblöð og köngla, er að vísu ekki alveg viss hvað ég ætla að gera við þetta allt en það kemur víst í ljós. en hvað um það þá var þetta ekkert smá góður göngutúr, rúmmlega 1 1/2 tími, það birjaði að vísu að rigna á okkur en þá ákváðum við líka að snúa við og labba heim, því miður gleymdist myndavélin heima en ég á pottþétt eftir að fara þangað aftur og taka myndir. og náttúrulega líka til að fá alla þessa góðu hreifingu, upp og niður og á ská ;o)
|
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home