Jólamarsipanið er komið
| Ok jóla undirbúningur byrjar greinilega fyrr hér en heima í síðustu viku sá ég jólaföndurblöð í búðum og svo rakst ég á svoldið sem er náttúrulega bara gott Jólamarsipan, það eru litlar (og stórar) fígúrur úr marsipani og sumar eru með súkkulaði utaná bara nammi namm, ég er nú samt að reyna að borða ekki of mikið af því, það má ekki skemma jólafílinginn.
ég er búin að vera rosalega dugleg að fylgjast með fréttum að heiman, sérstaklega um verkfallið, geta þeir bara ekki farið að semja og svo að krakkarnir fái smá mentun, þetta er bara ósamgjarnt gagnvart greyið krökkunum. Jú jú sum hafa nóg að gera í tónlist og íþróttum á meðan en hvað um hin greyin sem bara hanga og gera ekki neitt, þetta er bara mannskemmandi. ok ég bara varð að fá að segja þetta, því þetta kemur mest niður á þeim sem það síður skyldi. og þetta gefur bara slæma mynd af landi og þjóð. punktur og basta jæja þá er víst best að hætta þessu masi og fara að læra svoldið.. sæl að sinni |

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home