Nafn:
Staðsetning: Bifröst, Borgarbyggð, Iceland

föstudagur, febrúar 10, 2006

Ég er alger snilli

híhíhí.... eins og sumir vita þá hefur dvd spilarinn minn verið bilaður í þó nokkurn tíma, en samt sem áður ákvað ég að prufa hann í gær þar sem ég var ekki alveg í sturði að gera youga æfinagarnar fyrir framan tölvuna, en áhvað í staðinn að hafa myndina tvöfallda í sjónvarpinu, en ýtti svo á einhvern takka og viti menn myndin varð eðlileg... hví var ég ekki búin að prufa þetta áður.. ég sem hélt að ég hefði verið búin að ýta á alla takkana þegar spilarinn bilaði... þetta er alveg týpískt. en svona er þetta víst bara stundum...

og svo er auðvitað þorrablót hjá Ingu og Gumma í kvöld, það verður örugglega gaman.. frétti samt að ég og Inga verðum kannski einu stelpurnar þarna eða það var allavega staðan síðast þegar Inga vissi. En það verður örugglega samt gaman. :)

1 Comments:

Blogger Inga Rannveig said...

takk fyrir frábært kvöld :P...æðislegt að dvd-ið sé komið í lag

1:11 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home