Name:
Location: Bifröst, Borgarbyggð, Iceland

laugardagur, maí 19, 2007

loksins komin í almennilegt húsnæði

Jebb við Árni erum loksins komin í almennilegt húsnæði... það er að vísu 2 40 feta gámar en það er samt miklu betra en það sem við vorum í ... við látum vita síðar hvenær innflutningspartíið verður híhí....
Og já það minnir mig á það ég er víst að verða gömul í næstu viku... og ég er ekki ennþá búin að ákveða neitt um að halda upp á það... það er nefninlega búið að vera svo helv... mikið að gera þessa vikuna þar sem við fengum bara lyklana að nýju íbúðinni núna síðasliðinn þriðjudag... er að spá í að gera eitthvað til að halda upp á atburðinn en ég held að ég geimi það þar til síðar í sumar... en auðvitað er öllum sem þekkja þennann rugludall velkomið að kíkja í heimsókn til okkar skötuhjúa þegar ykkur lystir og eigið leið hjá....
en nú verð ég víst að hætta að skirifa í bili og fara að finna mig til fyrir staffadjamm í kvöld... eina sem er til vandræða er það að þar sem við vorum að flytja þá veit ég ekki hvar neitt er..... wish me luck

1 Comments:

Anonymous Þóranna said...

Jahér, það er aldeilis..... Maður er bara nánast hættur að líta á bloggið vegna þess að það er bara hreinlega ekki uppfært reglulega ( skamm skamm ).
Þetta er nú barasta hið fínasta húsnæði samt og þið búin að koma ykkur ansi vel fyrir bara myndi ég segja... þar sem ég sit hérna í aukaherberginu ykkar.. hehehe
Takk kærlega fyrir mig allavegana, alltaf gaman að koma til ykkar!!!
Kv
Þóranna

4:45 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Home