Nafn:
Staðsetning: Bifröst, Borgarbyggð, Iceland

laugardagur, september 11, 2004

ok ég veit að ég er ekkert svo rosalega dugleg að blogga

En það er ástæða fyrir því, það er bara búið að vera brjálað að gera í skólanum hjá mér þessa vikuna, það er nefninlega þannig að í einu faginu eru bara tíma eina helgi í mánuði... semsagt fimmtudags-kvöld allur föstudagurinn og svo laugardagsmorgunn líka þannig að núna er maður bara aðfara yfir um af öllum þessum upplýsingum og maður er ekki beint að fatta neitt, en það kemur þegar maður er ekki eins þreittur... annars er voðalega lítið að frétta af mér, jú það eru nokkrir sætir strákar hér sem ég hef hitt en þeir eru allir svo hev.... ungir... og haga sér í samræmi við það... ég er búin að heira íslensku svona 3 sinnum síðan ég kom hingað, sko það er fyrir utan það þegar ég tala við ykkur sem eru á íslandi.. og ef þið viljið tala við mig þá er ég komin með míkrafón við tölvuna svo að ég get talað í gengum netið hin leiðin er svo hev... dýr.. sko síminn.. og svo er síminn niðri alltaf upptekinn, þar sem að það er einn sími fyrir um 120 manns. ekki alveg að fatta það. en jæja það er kominn háttatími, þannig að ég held að ég þurfi að fara að leggja mig svo að ég verði upplögð til að læra á morgunn.. GÓÐA NÓTT..

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home