loksins búin með ritgerðina
ég er varla búin að vera viðræðuhæf síðustu vikuna vegna ritgerðarvinnu... og mikið er ég fegin að vera búin.. búin að skrifa 21 blaðsíðu um norska og íslenska málfræði... og ekki seinna vænna að vera búin. á að skila henni á föstudaginn.. en hef engann tíma á morgun til að kíka á þetta er í skólanum frá 10 um morguninn og verð víst að fram eftir kvöldi.. á bæði að vera í skólanum og á einhverju rótarí kvöldi annað kvöld... ætla að reyna að ná að gera bæði... og svo er skóli alla helgina gaman gaman.... og svo á náttúrulega að djamma smá... Carolin meðleigjandinn minn er að fara heim í næstu viku svo að það verður víst eitt loka djamm áður en hún fer... og svo líklegasr fóboltaleikur og grill líka um helgina... ekki alveg viss í hvaða röð... en það verður örugglega gaman hvernig sem það verður.... en jæja nú ætla ég að fara að prenta út ritgerðina mína og ganga frá henni í möppu svo að það sé búið.....

1 Comments:
Þú ert svo duuuugleg...
Skrifa ummæli
<< Home