Bergen ferðin sem varð að Stavanger ferð
Við ákváðum semsagt nokkur að skella okkur til Bergen um helgina, laugardag til sunnudags, en þau sem sáu um skipulagninguna klikkuðu aðeins.. við tókum rútuna til Stavanger (sem ég mæli ekki með... vegurinn er svoldið mikið zikk zakk...) en jæja við komunmst til Stavanger heilu á höldnu en viti menn þá var ferjan til Bergen löngu farinn og næsta ferja ekki fyrr en 12 næsta dag. þannig að við ákváðum bara að vera í Stavanger og fórum á upplýsinga miðstöðina til að athuga hvort það væri hægt að benda okkur á farfugla heimili, eða hótel... og viti menn við fengum barasta æðislega þjónustu þar.. stelpan reddaði okkur bara einn tveir og þrír.. voru að vísu í 2 herbergjum strákarnir (Ben og Kris) í öðru og við stelpurnar (ég, Fanny, Marta og Gosia) í hinu.. á laugardenginum löbbuðum við semsagt um Stavanger og skoðuðum margt og mikið og fórum meira að segja á djammið um kvöldið.. og það ætla ég að gera aftur (ef einhver vill koma með... ) vorum að vísu ekkert rosalega lengi þar sem við vöknuðum svo snemma .. en það var samt mjög gaman.. og svo á í dag sunnudag tókum við því bara rólega fram að hádegi og borðuðum morgun mat í rólegheitunum og fórum svo um hádegi í siglingu um Lysefjord.. rosa flottt. og svo tókum við því bara rólega þar til við fórum heim.. og komum aftur til Kristiansand um kl. hálf ellefu í kvöld en í það skiptið tókum við lestina.. ekki alveg til í að fara zikk zakk með rútunni aftur... en allt í allt var þetta rosalega skemtinleg ferð þó svo að hún hafi verið frekar stutt...
P.S. ég er búin að setja fullt af nýjum myndum inn bæði úr ferðinni og svo eitthvað meira líka í Kristiansand albúmið...
en nú er ég farin að sova Góða nótt
P.S. ég er búin að setja fullt af nýjum myndum inn bæði úr ferðinni og svo eitthvað meira líka í Kristiansand albúmið...
en nú er ég farin að sova Góða nótt

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home