allt á aftur fótunum
ok ég vaknaði í morgun ekkert svo rosalega hress. en fór svo í grill á Odderöya sem gekk að vísu rosalega vel.. en rétt áður en ég fór í grill reyndi meðleigjandinn minn að elda sér eitthvað og viti menn eldavélin virkar ekki.. hún vikraði í morgun því ég sauð mér egg og það gekk allt vel... en jæja svo kem ég heim úr grilli og langar rosalega mikið í sturtu og hvað haldið þið ekkert heitt vatn þannig að ég varð að hafa samband við húsvörðinn og þar sem hún Helga litla er svo dugleg að kaupa sér inneign í símann (er semsagt búin að gleyma að gera það í 2 vikur) en jæja svo að ég varð bara að senda mail og vona það besta.. en svo er það að hún Caroline kemst að þessu og hún bíður með að gera eitthvað í þessu þar til ég kem heim svo að ég varð að gera þetta vegna þess að ég tala norsku... semsagt hún var ekkert að hafa fyrir því að reyna... en ég vona allavega að þetta verði lagað á morgun því það lítur bara út fyrir að þetta hafi slegið út en þar sem ég veit ekki hvar rafmagnstaflan er þá get ég ekkert gert.. heima eru rafmagnstöflurnar inni í íbúðinni þannig að ef það slær út þá er ekkert mál að slá því bara inn aftur.. en jæja nú ætla ég að fara að gera eitthvað af viti...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home