Ótrúlegt hvað þessir norðmenn eru seinir að koma sér í að gera hlutina
Jamms svona eru þeir þessir nossarar.. eins og þið flest vitið þá höfum við verið sjónvarpsherbergislaus síðan í janúar og sjónvarpslaus síðan í nóvember en þá bilaði þessi indislegi imbakassi... en jæja loksins núna í byrjun maí þá kom upp miði niðri sem tilkynnti okkur um það að nú væri möguleiki á að það yrðu kannski einhver læti hér í byggingunni á daginn þar sem þetta indislega herbergi á nú að breytast í íbúð... semsagt í staðin fyrir að fá eitthvað gamalt sjónvarp og leifa okkur að hafa herbergið þar til núna eða jafnvel að leifa okkur að hafa þetta herbergi án sjónvarps eða fara strax í það að breyta því... þá hafa þau hjá SIA ákveðið að trufla okkur frekar við próflesturinn með látum og þessháttar... ekki er ég að skilja þessa blessuðu norðmenn.. enda er mín eiginlega bara farin að bíða eftir að komast heim.. væri alveg til í að hafa prófin mín svoldið fyrr en þau eru ekki fyrr en 31. maí, 2 og 10 júní.. ekkert gaman jú jú ég hef nógan tíma til að lesa fyrir þau en samt.. þetta er nú einum of seint... en jæja ætli ég verði ekki að fara að halda áfram að lesa.. í rigningunni

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home