Nafn:
Staðsetning: Bifröst, Borgarbyggð, Iceland

miðvikudagur, maí 18, 2005

17. maí

þjóðhátíðardagur norðmanna 17. maí var í gær og mikið fjör í bænum.. ég ætlaði að taka fullt af myndum en það varð ekkert svo mikið úr því.. en dagurinn byrjaði með því að lúðrasveitin gekk um bæinn klukkan 7 um morguninn til að vekja fólk... hí hí voða gaman, það var svoldið öðruvísi að vakna við þetta.. en svo byrjaði barna skrúðgangan um klukkan hálf tíu.. og þar sem hún gengur framhjá húsinu hjá mér var náttúrulega farið út að horfa á.. og svo var lagt af stað niður í bæ til að kíkja á hátíðarhöldin.. en þar sem við hér á vistinni fengum enga dagskrá þá var svoldið erfitt að vita hvað var að gerast.. en við náðum að redda einni dagskrá þannig að þegar manni vantaði að vita hvað væri í gangi og hvar þá var hringt í þann sem var með hana og spurt... en hann náttúrulega talar ekki norsku þannig að það gekk stundum efrið lega.. en svona er það.. það var æðislegt veður fram eftir degi.. en svo rétt upp úr hádegir kom þetta rosalega haggél og rigning.. og þá hélt maður sér náttúrulega bara inni en jú jú auðvitað fór maður svo út og horfið á folketoget.. sem sagt hér er ekki bara ein skrúðganga.. og eftir folketoget var farið heim og fengið sér í svanginn.. og svo um kvöldið var enn ein skrúðganga... en hún var svoldið öðruvísi.. það voru meira að segja verðir í kringum lúðrasveitina.. þessi skrúðganga er sér dæmi fyrir Kristiansand.. þá semsagt haldast allir eða allavega nokkrir hóðar í hendur og hlaupa um og hálfpartinn dansa.. og endar þessi skrúðganga niður við virkið og þar var þessi rosa flotta flugeldasíning.. og sem betur fer var ágætis veður um kvöldið en samt svoldið kallt.. en nú er allt farið að ganga sinn vana gang.. með látum á efrihæðinni og allt.. og vonandi góðu veðri.. svo ég geti tillt mér út að lesa í smá stund í dag.. verð samt að passa mig.. ég nefninlega settist út um daginn og las í svona klst.. og sat óvart allan tímann með bakið í sólina svo að ég brann pínku pons.. en jæja ég verð víst að hætta núna svo að það verður meira síðar.. ég set kannski inn nokrar myndir af 17. maí síðar ég ætla að ath hvort að það séu einhverjar nothæfar hjá mér..

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home