Hvað gera prakkarar í þessu?

nautnaseggur

Nafn:
Staðsetning: Bifröst, Borgarbyggð, Iceland

fimmtudagur, desember 30, 2004

Vá hvað tíminn er allt of fljótur að líða

Ég trúi því varla að það komi nýtt ár eftir 2 daga... mér fynnst þetta ár vera ný byrjað. alveg eins og þessir 4 mánuðir í noregi þó svo að mér fannst vera rosalega langt síðan ég hitti fjölskyldu mína þá fannst mér ég rétt ný búin að kynnast vinum mínum þarna úti, og flestir þeirra koma ekki einu senni aftur eftir áramót :( og svo er ég búin að vera hér í rúmmar 2 vikur og varla búin að fá að hitta vinimína almennilega og suma ekkert hitt... verð að fara að bjarga því. það er bara verst með alla þessa hálku og það dæmi því síðast þegar ég keyrð var í byrjun ágúst og það er svoldið langt síðan.. en jæja ég ætla að hætta þessu og fara að koma mér út á bókasafn og fynna mér málfræðibækur svo að ég geti nú gert ritgerðina mína þegar ég kem aftur út... um að gera að vera dugleg er það ekki??

föstudagur, desember 24, 2004

Gleðileg Jól

Þá er kominn aðfangadagur og ég vil óska öllum nær og fjær gleðilegra jóla.

það er sko mikið búið að gerast í Reyrhaganum í morgun allt þetta venjulega jóla stúss og svo komu auðvitað Jólasveinarnir með pakka handa Valgeiri... hann fékk víkinga-pleymó... og Stúfur, Bjúgnakrækir, Kertasníkir og Hurðaskellir komu með pakkan... það var rosalega gaman. og þeir villtust á leiðinni út.. fóru inn í Fjólu herbergi og inn í nokkur önnur áður en þeir fundu leiðina út... en það var bara gaman.. jæja þá er víst kominn tími til að halda áfram með allt jóla jóla stússið þannig að ég segi bara aftur
Gleðileg Jól

mánudagur, desember 20, 2004

uff da

Búin að vera heima í viku og barasta fullt að gera.... tvær stúdenta veislur á föstudaginn og svo fjölskylduboð í gær.... og auðvitað fékk maður spurninguna Hvernig var í noregi allstaðar... held að ég sé svoldið þreitt á þessari spurningu alveg eins og ég var orðin svoldið mikið þreitt á spurningunni Eru nokkuð tré (skógar) á íslandi?? það var sko aðal spurningin úti það héldu barasta næstum allir að ísland væri næstum eiðimörk hvað varðar gróður eða svona næstum því.. en fólk vissi þó að það væri grænna á íslandi en á grænlandi, enda var ég mikið spurð hvers vegna þetta væri svona en ekki öfugt og ég náttúrulega svaraði því bara, maður lærði þó eitthvað í Íslandssögu hér í gamla daga... en jæja ég ætla að fara að hætta þessu og kíkja kanski út í snjóinn...

miðvikudagur, desember 15, 2004

Komin heim

Jæja þá er maður komin heim.. eftir rosalega langt ferðalag og kalt. ég semsagt fór úr um 5°c hita í Kristiansand og kom heim í -7°c frost hér heima á klakanum bara svona smá hitamunur. En það var samt rosalega gott að koma heim og sjá alla og fá að tala íslensku allan daginn.. en jæja nú ætla ég að fara og njóta dagsins og láta mér líða vel..

mánudagur, desember 13, 2004

Heim á morgunn

jæja þá er komið að því, ég kem heim á morgun..... legg af stað héðan klukkan 5 í fyrramálið og lendi svo á íslandi um 4 leitið á morgun, og þá verður maður víst að aðlaga sig að tímanum aftur því þið eruð víst 1 klst. á eftir þarna á klakanum.. en ég hlakka roasalega mikið til að sjá alla. búin að pakka og allt ( var meira að segja svo dugleg að vikta 2x ofan í töskuna og er með rett 18 kíló ( sko að töskunni meðtaldri hún er svona um 6 kíló að ég held) þannig að ég er ekki með neina yfir vikt) en jæja ég ætla að fara að vera dugleg og pakka í tölvutöskuna, talvarn fer að vísu ekki alveg strax ofan í, því ég ætla að hlusta aðeins á jólalögin.

sunnudagur, desember 12, 2004

Til hamingur Selfyssingar

Jæja nú er loksins komið bíó í minn æðislega heimabæ. og vildi ég bara óska bæjarbúum til hamingju með langþráð bíó (sem er að vísu búið að vera nokkuð lengi á leiðinni bara svona um 15-20 ár að ég held) en jæja ég er víst að fara í bíó þegar ég kem heim, hún litla systir mín ætlar að sjá til þess, en hún er eitthvað að halda því fram að ég ætli að borga hvar ætli hún hafi fengið þá hugmynd.???????? hummm en jæja bara skot milli systra ;o)

það var síðasata djammið mitt með Gosiu og Marit í gær, bara gaman fór að vísu snemma heim, ég var bara eitthvað svo þreitt og svoleiðis (samt ekki full, bara létt) en viti menn engin okkar tók með sér mynda vél þannig að ætli maður verði ekki bara að ræna myndum hjá öðrum sem voru með vél með sér...... við vorum semsagt nokkur sem fórum á djmmið og ég kynntist nokkrum nýjum "drykkjuleikjum" en sumir þeirra eru eiginlega einnota því þeir eru bara þannig að ég veit ekki en ég komst að því að það er hægt að nota leikinn Hver stal kökunni sem þannig leik hummm hugmynd þær amerísku gerðu leikinn að vísu svoldið dirty en samt mjög skemtinlegann..... ok hvað ætlaði ég að segja meira????? ég veit ekki en ég kem heim eftir 2 daga þannig að ég sé ykkur bara þá og ég held ég fari bara að horfa á spaugstofuna.

laugardagur, desember 11, 2004

ok nú gefst ég upp

Ég er semsagt búin að vera rosalegadugleg að pakka niður í tösku í morgun það sem ég tek með mér heim um jólin og ætlaði semsagt að vera rosalega sniðug og taka bara litlu töskuna og bakpokann og tölvutöskuna en nei nei ég er búin aðfilla þær allar og ekki einu sinni búin að setja allt í þær, og ég er nota bene bara að taka það nauðsinlegasta og jú nokkra hluti sem ég ætla svo að skilja eftir heima (pabbi ekki hafa áhyggjur ég er ekki nærri því að vera komin upp í 20 kílóin) svo að ég býst við að ég verði að taka stóru töskuna með mér í staðinn en þá verð ég að vísu bara með stóru töskuna og tölvutöskuna.. en samt þá verð ég að fara að passa mig því að stóra taskan er 6 kíló eða eitthvað en sú litla er bara 4 og sko þá meina ég taskan sjálf með engu í. en jæja ég ætla að hætta þessu í bili og koma mér út að gera eitthvað gá hvort ég finni ekki einhverjar jólagjafir... eitthvað svona lítið og sætt ;o)

föstudagur, desember 10, 2004

LOKSINS BÚIN

Jæja þá er ég loksins búin í prófum og við skulum bara segja að annaðhvort er ég kolfallin í öllusaman eða náði ég hef ekki grænann grun hvort. og er sko ekki að nenne að spá í því... enda er hausinn minn bara domm ég veit varla hvað ég heiti enda í fyrsta skipti sem ég skila inn prófi sem er bara með prófnúmmeri en ekki nafni.. og það í tvíriti. prófið var í raun í þríriti en ég fékk að eiga eitt eintakið, ég er ekki að skilja þetta ok ég veit að það eru tveir sem fara yfir prófin en er þá ekki bara betra að ljósrita frumritið ????? ok það gæti tekið svoldið lanann tíma en samt það sést svo illa á þessi blöð, sérstaklega afritin en jæja nú er þetta búið og gert þannig að ég held ég hætti bara og vitið þið hvað?????????????????????????????????????????????
????????????????????????????????????????????????????????????????????????
????????????????????????????????????????????????????????????????????????
????????????????????????????????????????
??????????????????????????????????????????????
????????????????????????????????????????????????
?????????????????????????????????????????????????????
????????????????????????
?
????????????????????????????
;o) æ ég bara varð en svarið við spurningunni er ég kem heim eftir 4 daga

miðvikudagur, desember 08, 2004

kominn tími á pásu

Vá ég er búin að vera að lesa í dag og viti menn ég veit ekkert meira en áður en ég byrjað að lesa, veit ekki hvort maður eigi að vera að stessa sig yfir þessu, jú prófið er að vísu 6 tímar en vá hvað getur maðru eiginleg svarað miklu á þessum tíma ef ég þekki mig rétt verð ég annað hvort löngu farin út áður en próftíma líkur eða að ég nota hann allann. en jæja ég er að spá í að lesa aðeins meira og fara svo bara að leggja mig...ef ég veit ekki allt um samfélag og tungumál á norðurlöndum nú þegar kem ég varla meiru inn núna... en jæja þá segi ég bara Góða nótt.

þriðjudagur, desember 07, 2004

kem heim eftir viku

jibbí búin að skila ritgeðinni minn og það var sko mikill léttir..... þá á
ég bara eftir eitt próf..

en að öðru Takk Gulli fyrir ábendingarnar um jólasveinanna. nú get ég sko sýnt vinum mínum ekta íslenska jólasveina ;o)

en jæja ég ætal að kíkja á fréttirnr áður en ég held áfram að læra fyrir mitt yndislega 6 tíma próf á föstudaginn.

þannig að ég segi bara meira seinna.

mánudagur, desember 06, 2004

Búin með Ritgerðina Jibbí

ok ég er LOKSINS búin með ritgerðina mína, var rosa bjartsýn í gær og hélt nú að ég væri búin en svo þegar ég las hana yfir í morgun sá ég að það mætti alveg bæta smá við þannig að hún endaði í tæpum 8 bls í stað sléttum 7 og ég er bara nokkuð ánægð því hún mátti vera max 10 og venjulega þegar það er sagt max eitthvða með verkefni næ ég kannski 2/3 en nú náði ég 3/4 þannig að ég er ánægð.
jæja nú er bara að fara að lesa undir prófið sem er á föstudaginn. og svo að mæta í tíma á laugardaginn og svo er mín bara búin....

laugardagur, desember 04, 2004

Auglýsi hér með eftir myndum af íslensku jólaveinunum

ok svo er mál með vexti að mig langaði að sína vinum mínum hér úti myndir af hinum al íslensku jólasveinum semsagt ekki þessum í rauða búningnum heldur þessum gömlu góðu en þar sem ég finn ekkert nema lélegar ljósmyndir af þeim á netinu myndi ég vel þyggja smá hjálp.. svona ef einhver getur hjálpað mér...

en að öðrum nótum ég kem heim eftir 10 daga.........

Ok ein spurning

Ég verð bar að spyrja út í þetta Idol á íslandi geta strákarnir sem komust í 32 manna úrslit ekki sungið????? því það eru bara stelpur sem hafa komsit árfam í þessu 3 þáttum sem eru búnir að vera og ein þáttur eftir og jú að vísu happa glappa þátturinn líka. ok ég ætla að hætta að velta mér uppúr þessu og halda áfrm með ritgerðina mína.... næstum búin það vantar bara eitthvað smá og þá er þetta komið.

föstudagur, desember 03, 2004

11 dagar eftir

jæja þá er kominn föstudagur aftur, og ég fer heim eftir 11 daga eða réttara sagt þannn 14 og mín ætlar bara að vera góð á því og ná lestinni klukkan hálf 6 um morguninn.... það er svo miklu ódýrara en að fljúga því ef ég ter flugið héðan þá kostar flugið rúmman 500nrk en lestin kostar bara 150nrk tekur að vísu svoldið lengri tíma en hvað um það ég get sofið í lestinni og svo í vélinni líka þannig að ég ætla bara að vera hörð á því og vakna snemma.

heirðu hvað á maður að gera þegar maður er orðin stopp með ritgerð og bara rúm ein blaðsíða eftir???? ég er svo gersamlega stopp núna held ég fari bara út og fái mér ferskt loft og kaupi mér egg.... eða eitthvað... jæja ég er allavega farin út.

fimmtudagur, desember 02, 2004

búin að missa 2,5 kíló

ok ég skal segja ykkur alla söguna, ég fór í mat til deildarstjóra norskudeildarinnar í gær hún bauð öllum skiptinemunum sem eru að læra norsku í mat, og hún var með vikt inni á baði og viti menn ég var 2,5 kg léttari en þegar ég kom hingað, væri svossum alveg til í að hafa lést meira en þetta er þó byrjun enda er ég búin að vera rosalega dugleg að borða ekki neitt sem er með mjólk í eða allavega að reyna það, hef allavega ekki fengið mikið í magann ;O) og svo labba ég náttúrulega í skólann og til baka og hvor ferð tekur svona uþb 20 mín og svo labbar maður náttúrulega allt sem maður fer.. hefði að vísu getað verið duglegri og farið í ræktina en þar sem mitt indislega hné mótmælti ákvað ég að sleppa því... er að vísu að spá í að prufa aftur eftir áramót en fer þá bara hægt í það... en jæja ég bara varð að deila þessu með ykkur, því ég er svo ánægð með þetta

en jæja halda áfram að læra.... verð að vera dugleg... komið smá stress í gang, var að læra til 2 í nótt og ætlaði svo að sofa bara til 10 en nei nei viti menn ég var vöknuð klukkan 8 og komin í stuð til að læra... og þá er víst best að halda áfram..